Innlent

Sjómaður í vanda á Reykjanesi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vísir/Vilhelm
Nú standa yfir björgunaraðgerðir undir Staðarbergi á Reykjanesi þar sem sjómaður á í vanda með bát sinn.

Björgunarskipið Oddur V. Gíslason og björgunarbáturinn Árni í Tungu frá Grindavík eru nú að aðstoða sjómanninn sem var á strandveiðum undir Staðarbergi á Reykjanesi þegar stýrisbúnaður í bát hans bilaði.

Þrátt fyrir að ágætisveður sé á staðnum voru bjargir kallaðar út á fyrsta forgangi þar sem báturinn var staddur aðeins um 0,4 sjómílum frá landi.

Árni í Tungu er kominn að hinum bilaða báti og nokkrar mínútur eru í björgunarskipið sem mun draga bilaða bátinn til hafnar að því er kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×