Guðni auglýsir Texasborgara Jakob Bjarnar skrifar 6. maí 2014 16:33 Félagarnir Maggi meistarakokkur og Guðni, sendiherrar sauðkindarinnar.
Magnús Ingi Magnússon meistarakokkur og sjónvarpsstjarna, en hann hefur lengi verið með vinsæla sjónvarpsþætti á ÍNN sem heita Eldhús meistaranna. Hann er því gjarnan kallaður Maggi meistarakokkur en hann rekur Sjávarbarnum og Texasborgara niðri á Granda. Maggi fékk sjálfan Guðna Ágústsson, fyrrum ráðherra og framkvæmdastjóra Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði, til að lesa fyrir sig auglýsingar um lambaborgara, auglýsingar sem nú eru farnar að hljóma á ÍNN og víðar: „Þar sem lambaborgari og bernaise-sósa koma saman sérðu rammíslenskan skyndibita,“ les Guðni og gerir það sannfærandi. Maggi meistarakokkur var syngjandi sæll og glaður þegar Vísir náði af honum tali. „Jájájá, þetta er hann. Hann er sendiherra kindarinnar og hefur verið alla tíð. Þetta er hinn eini sanni landbúnaðarráðherra og rammíslenskur framburður,“ segir Maggi og er ánægður með hvernig til tókst með auglýsinguna.En, hvernig kom þetta til?„Við erum saman í ræktinni úti á Nesi og ég óð á hann og spurði hvort hann vildi ekki styrkja íslenskan landbúnað? Hann var meira til í það. Ég er spældur að hann hafi ekki farið í framboð, þá hefði ég getað notað hann miklu meira. Jájá, ég hefði kosið hann. Ég hef kosið menn eftir að ég gafst upp á Sjálfstæðisflokknum. ef mér lýst á einhvern þá kýs ég hann. Guðni er alveg svakalega flottur, heldur sér vel og ég hefði haldið að hann ætti að sprikla meira.“Herti upp hugann og ávarpaði Guðna Maggi meistarakokkur þorði í fyrstu ekki að ávarpa hinn fræga Guðna en svo var Guðni svo kumpánlegur að Maggi þorði að ávarpa hann með þetta erindi. „Svo hefur hann komið að borða hjá mér og svona.“ Textinn er glúrinn og með vísan til fleygra ummæla Guðna sjálfs sem voru eitthvað á þá leið að þar sem tveir Framsóknarmenn koma saman, þar er gaman. Frasinn er reyndar til í ótal útgáfum: Þar sem tveir Framsóknarmenn koma saman, þar er spegill. Og svo framvegis. Magnús samdi textann sjálfur: „Já, eða, ég er með toppmann mér til aðstoðar sem heitir Styrmir Guðlaugsson, blaðamaður og sagnfræðingur. Við hentum þessu á milli okkar og erum saman í því að hafa gaman að þessu.“Eins og atvinnumaður í upplestrinum Upptökur tókust vel og Maggi segir Guðna hafa borið sig að sem sannur aðstoðarmaður við innlesturinn. „Eins og hann sé fæddur í þetta. Rúllaði þessu alveg upp. Prófessíónal. Hann gæti lagt þetta fyrir sig. Væri flottur í það, hann er svo skýrmæltur.“ Og kannski að Guðni leggi þetta fyrir sig eftir og ef auglýsingin fær vængi. Spurður hvað Guðni hefði tekið fyrir auglýsingalesturinn segir Maggi menn ekki ræða það. „Við máttum ekki tala um það, þetta er greiði á móti greiða og vinarþel. Ég fékk smá styrk hjá sauðfjárbændum í fyrra því ég er að reyna að koma lambaborgaranum meira á framfæri. Þeir gáfu mér smá styrk. Bað um aftur núna og ætlaði að hafa þetta myndalegra, fékk Guðna í lið með mér, sem sendiherra sauðkindarinnar. Við erum góðir í lambi og lambaborgari bernaise er rosalega góður.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira