Rafmagnslínur á Vestfjörðum illa farnar vegna snjódýptar Sveinn Arnarsson skrifar 7. maí 2014 17:19 Fannfergið á fjöllum á Vestfjörðum er gríðarlegt á sumum svæðum.
Starfsmenn Orkubús Vestfjarða þurftu að vinna við erfiðar aðstæður í gær á Rauðkolli milli Ísafjarðar og Súðavíkur í gær. Fannfergið í fjöllum á þessu svæði er enn gríðarlegt eins og sést á meðfylgjandi mynd sem rafvirki hjá Orkubúi Vestfjarða tók. Starfsmenn Orkubúsins fóru upp á Rauðkoll til að moka frá rafmagnsstaurnum og dytta að honum, rafmagnsstaurinn var farinn að halla nokkuð mikið vegna snjóþunga. Eins og sjá má á myndinni voru starfsmennirnir á nokkru dýpi þarna í snjónum og fararskjóti starfsmanna, vélsleðinn, var í sömu hæð og raflínurnar. Kristján Haraldsson, orkubústjóri segir þennan vetur hafa verið nokkuð erfiðan. „Veturinn hefur verið afar snjóþungur og langt síðan svona mikill snjór hefur verið í fjöllum á svæðinu. Samt sem áður höfum við náð að halda úti þjónustu á svæðinu mun betur en árið áður." Staurinn á myndinni er um 12 metrar á hæð. Snjódýptin á svæðinu er í kringum átta metrar. Starfsmenn þurftu að beygja sig til að keyra undir línuna á þessu svæði og búið er að girða línuna af á sumum svæðum til að reyna að tryggja öryggi þeirra sem er á ferðinni á þessum slóðum. Kristján beinir því til allra að fara varlega á fjöllum. Það sé alltaf hætta þegar lágt er á línur. Orkubúið hefur reynt eftir fremsta megni að koma skilaboðum áleiðis til ferðalanga. „Orkubú Vestfjarða vill koma því áleiðis að biðja alla þá sem eiga leið um svæðið á vélsleðum eða öðrum farartækjum að fara afar varlega. Þarna sé snjór það mikill ennþá að rafmagnslínur liggja afar nálægt snjó og sumstaðar eru þær á kafi. Því gæti mikil hætta skapast ef ekki er farið varlega á þessum slóðum."
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira