Enginn fór úr að ofan á kvennakvöldi Blika Jakob Bjarnar skrifar 28. apríl 2014 11:24 Hannes Friðbjarnarson var veislustjóri og hans upplifun stangast á við frásagnir af kynferðislegri áreitni miðaldra kvenna gagnvart ungum drengjum.
Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri Barnaheilla, heldur því fram að konur á kvennakvöldi Breiðabliks hafi farið yfir öll velsæmismörk og áreitt unga drengi kynferðislega. Hannes Friðbjarnarson tónlistarmaður var veislustjóri og upplifun hans var allt önnur en Margrétar Júlíu.Boðið í piltana Kvennakvöld var haldið síðastliðið laugardagskvöld. Margrét Júlía var viðstödd og henni var brugðið vegna atgangsins. Hún segir, í samtali við Vísi, að miðaldra konur hafi áreitt unga drengi, liðsmenn meistaraflokks Breiðabliks í knattspyrnu sem þarna voru mættir, fjórir eða fimm, til að selja happadrættismiða. Þær hafi krafist þess að drengirnir færu úr að ofan og einhver þeirra vildi bjóða í piltana. „Ég hefði getað grátið af skömm fyrir kynsystrum mínum og vegna þessarar ömurlegu stöðu sem drengirnir voru settir í,“ segir Margrét Júlía.Blikar harma gjörninginn Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem harmað er að upplifun Margrétar Júlíu hafi verið með þessum hætti. Þar kemur fram að vilji sé til að hafa í heiðri siðareglur félagsins og jafnréttisstefnu -- hún verði brýnd fyrir aðstandendum kvöldsins. Undir þetta ritar Eysteinn Pétur Lárusson framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Breiðabliks. Fréttastofa náði tali af Borghildi Sigurðardóttur snemma í morgun vegna málsins, en hún er formaður knattspyrnudeildarinnar. Hún ætlaði að athuga málið en hefur ekki svarað síma aftur eftir þetta þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Vísis/Bylgjunnar.Eitt tilboð sem ekki hlaut hljómgrunn Veislustjóri á kvennakvöldi Blika var tónlistarmaðurinn Hannes Friðbjarnarson og honum er ekki skemmt. Hans upplifun er allt önnur en Margrétar, Hannes segir engan hafa farið úr að ofan. „Ég upplifði þetta þannig að það fór enginn úr að ofan.“ Hannes segist hafa verið þarna lungann úr kvöldin og hann hafi fengið staðfestingu þess efnis að enginn hafi farið úr að ofan eftir að hann hvarf af vettvangi. Þá kannast Hannes ekkert við að nokkurt kynferðislegt áreiti hafi átt sér stað. „Ég get ekki tekið undir það. Ég veit að það var ein kona sem fór fram á það að hún ætlaði að kaupa ákveðinn fjölda af miðum í skiptum fyrir það að einhver færi úr að ofan. Hún fékk ekki mikinn hljómgrunn í salnum. Þannig að það dó með sjálfum sér, þetta tilboð. Það er það eina sem gerðist þetta kvöld.“Ekkert kynferðislegt við framgöngu piltannaÞannig að þú vilt meina að þetta sé hálfgerður stormur í vatnsglasi? „Þetta er fárviðri í vatnsglasi. Þetta er gömul saga og ný með kvenna- og herrakvöld á Íslandi. Eða, þetta hefur örugglega verið öðruvísi hér áður fyrr. En það er, held ég búið með þessar íþróttir.“ Margrét Júlía segir drengina hafa verið miður sín eftir þessa reynslu en Hannes kannast ekki við neitt slíkt. Drengirnir mættu í sínu fínasta pússi og ekkert kynferðislegt við þeirra framgöngu, að sögn Hannesar. „Ég talaði við þá alla á sunnudeginum. Og þeir báru sig vel. Seldu glás af happadrættismiðum. Það kannast enginn þeirra við kynferðislega áreitni og hún verður þá að nefna einhver nöfn.“
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira