Svavar fór einnig í viðtal hjá útvarpsstjóra Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. apríl 2014 10:53
Ingólfur Bjarni Sigfússon, Rakel Þorbergsdóttir, Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Svavar Halldórsson hafa öll farið í gegnum ítarlegt starfsumsóknarferli vegna starfs fréttastjóra RÚV. Vonir standa til að hægt verði að tilkynna um nýjan fréttastjóra og ráðningu í aðrar yfirmannsstöður á RÚV á morgun. „Það var alltaf planið að þetta yrði klárað fyrir páska og gert opinbert um leið,“ segir Sigrún Hermannsdóttir, fulltrúi útvarpsstjóra. Markmiðið hafi verið að tilkynna um ráðningar í síðasta lagi á morgun, miðvikudag fyrir páska, en óljóst sé hvort það náist.Alls sóttu tólf um starf fréttastjóra. Herma heimildir Vísis að af þessum tólf hafi níu uppfyllt hæfniskröfur og verið boðaðir í viðtal sem Capacent stóð fyrir. Í framhaldinu var þeim fjórum, sem nefndir eru að ofan, boðið í frekari próf. Var persónuleikapróf meðal þess sem hin fjögur fræknu þreyttu. Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri var svo sjálfur viðstaddur viðtöl sem þau Ingólfur Bjarni, Rakel, Sigríður og Svavar mættu til í gær. Sigrún segir útvarpsstjóra hafa vonast til þess að ferlið gengi sem hraðast svo nýir yfirmenn á RÚV gætu hafið störf strax eftir páska. „Það hefur reynst erfitt að boða suma í viðtöl. Þetta tekur sinn tíma,“ segir Sigrún. Hún á ekki von á öðru en að tilkynnt verði um ráðningu í öll störfin níu á sama tíma. Alls verða ráðnir níu yfirmenn til viðbótar við þá yfirmannsstöðu sem Magnús Geir gegnir nú þegar. Útvarpsstjóri hefur lagt á það áherslu að kynjahlutföll verði með jafnara móti þegar komi að yfirmannsstöðum. Staðan er í það minnsta enn jöfn sé horft til fréttastjórastöðunnar þar sem tveir karlar og tvær konur keppast um stöðuna. „Magnús Geir er mikill jafnréttissinni og það verður leitast við að hafa kynjahlutföll sem jöfnust,“ segir Sigrún. Auðvitað verði þó enginn ráðinn af því hún sé kona heldur fyrst og fremst horft til hæfni umsækjenda. Aðrir sem sóttu um stöðu fréttastjóra voru Benedikt Sigurðsson Aðstoðarmaður ráðherra, Hanna Lára Kristjánsdóttir, Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttamaður, Hlynur Gauti Sigurðsson Verkefnastjóri, Jakob Jóhann Sveinsson verkfræðinemi og sundkappi, Jóhann Hauksson fréttamaður og fyrrverandi dagskrárstjóri, Jóhann Hlíðar Harðarson fréttamaður og Pálmi Jónasson fréttamaður.
Tengdar fréttir Þau sóttu um yfirmannsstöðu hjá RÚV Á þriðja hundrað manns sóttu um framkvæmdastjórastarf. 7. apríl 2014 15:48 Ingólfur Bjarni og Pálmi sóttu einnig um Þeir sem sóttu um framkvæmdastjórastöður á RÚV hafa til hádegis í dag til að draga hana til baka óttist þeir nafnbirtingu. 4. apríl 2014 10:38 Óðinn sækist ekki eftir endurráðningu Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV, mun starfa við hlið nýs fréttastjóra til 1.október næstkomandi. Í kjölfarið mun hann hefja störf sem frétta- og dagskrárgerðarmaður 26. mars 2014 16:01 Hafa sótt um stöðu fréttastjóra á RÚV Heiðar Örn Sigurfinnsson, Jóhann Hlíðar Harðarson, Rakel Þorbergsdóttir og Svavar Halldórsson sækjast öll eftir því að leiða Ríkisútvarpið inn í nýja tíma sem fréttastjóri RÚV. 3. apríl 2014 16:39 Sigríður Hagalín líklegust í fréttastjórastólinn Magnús Geir Þórðarson hefur í dag verið önnum kafinn við að taka viðtal við kandídata í yfirmannastöður RÚV. 14. apríl 2014 13:36 Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Stöðvaður tvö kvöld í röð Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Fleiri fréttir Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Sjá meira
Þau sóttu um yfirmannsstöðu hjá RÚV Á þriðja hundrað manns sóttu um framkvæmdastjórastarf. 7. apríl 2014 15:48
Ingólfur Bjarni og Pálmi sóttu einnig um Þeir sem sóttu um framkvæmdastjórastöður á RÚV hafa til hádegis í dag til að draga hana til baka óttist þeir nafnbirtingu. 4. apríl 2014 10:38
Óðinn sækist ekki eftir endurráðningu Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV, mun starfa við hlið nýs fréttastjóra til 1.október næstkomandi. Í kjölfarið mun hann hefja störf sem frétta- og dagskrárgerðarmaður 26. mars 2014 16:01
Hafa sótt um stöðu fréttastjóra á RÚV Heiðar Örn Sigurfinnsson, Jóhann Hlíðar Harðarson, Rakel Þorbergsdóttir og Svavar Halldórsson sækjast öll eftir því að leiða Ríkisútvarpið inn í nýja tíma sem fréttastjóri RÚV. 3. apríl 2014 16:39
Sigríður Hagalín líklegust í fréttastjórastólinn Magnús Geir Þórðarson hefur í dag verið önnum kafinn við að taka viðtal við kandídata í yfirmannastöður RÚV. 14. apríl 2014 13:36