Innlent

Ísland í dag: Íhugaði sjálfsvíg

Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson. Vísir/Getty
Guðlaugur Victor Pálsson, knattspyrnukappi hjá hollenska liðinu NEC Nijmegen, hefur gengið í gegnum erfið andleg veikindi undanfarin misseri sem endaði með því að hann fékk taugaáfall fyrir þremur mánuðum.

Guðlaugur íhugaði sjálfsvíg og var í kjölfarið lagður inn á geðdeild Landspítalans. Hann hefur unnið hörðum höndum að því síðustu mánuði að ná bata.

Hjörtur Hjartarson heimsótti Guðlaug Victor til Hollands á dögunum og ræddi við hann um veikindin, meðferðina sem enn stendur yfir, atvinnumennskuna í fótbolta og hvers vegna hann var nánast gjaldþrota eftir fimm ár í atvinnumennsku í knattspyrnu.

Afraksturinn má sjá í Íslandi í dag í kvöld. Þátturinn hefst 18:55.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×