Innlent

Enn blóðslettur í stigaganginum þar sem skotárásin í desember var

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Enn eru blóðslettur á stigaganginum þar sem skotárásin var. Stutt er síðan nýjar rúður voru settar í gluggana.
Enn eru blóðslettur á stigaganginum þar sem skotárásin var. Stutt er síðan nýjar rúður voru settar í gluggana. VÍSIR/VILHELM/PJETUR
Skjólveggurinn sem var settur upp fyrir utan íbúð mannsins, sem féll eftir skotárás á heimili sínu í desember á síðasta ári, hefur verið tekinn niður. Jafnframt hafa verið settar nýjar rúður í glugga íbúðarinnar.

Samkvæmt íbúa í húsinu eru um tvær vikur síðan nýjar rúður voru settar en þangað til var gluggunum lokað með tréhlerum.

Maðurinn sem lést bjó í blokk í Hraunbæ í Reykjavík. Hann hóf að skjóta út um glugga íbúðar sinnar aðfaranótt 2. desember. Umsátursástand skapaðist við heimili mannsins. Fór svo að lokum að lögreglan skaut manninn sem lést af sárum sínum.

Íbúinn segir að enn séu blóðblettir í gólfteppinu í stigaganginum. Ekki hefur tekist að hreinsa teppið og enn hefur ekki verið skipt um það. Hann sagði það mál í vinnslu.

Nú séu um fjórir mánuðir liðnir frá því atburðurinn varð. Efiðlega hafi gengið að finna nokkurn sem vilji taka ábyrgð á kostnaðinum við lagfæringar á húsnæðinu eftir árásina.


Tengdar fréttir

Skotum rigndi yfir sérsveitarmenn - hitti einn í höfuðið

Byssumaðurinn í Hraunbænum lét skotum rigna yfir sérsveitarmenn lögreglunnar þegar þeir gerðu tilraun til að ryðjast inn í íbúðina. Lögreglan harmar atburðinn og vill koma innilegum samúðarkveðjum til ættingja mannsins.

Byssumaðurinn var ekki með byssuleyfi

Sævar Rafn Jónasson, maðurinn sem lést, eftir skotbardaga við sérsveit Ríkislögreglustjóra í Árbænum í gær mun ekki hafa verið með byssuleyfi fyrir haglabyssu en fréttastofa RÚV hefur heimildir fyrir því.

Umsátursástand í Árbæ - skotið á lögreglumenn

Umsátursástand er í Árbæjarhverfi í Reykjavík þar sem maður virðist hafa skotið af byssu. Allt tiltækt lið lögreglu er á staðnum og hefur verið opnuð fjöldahjálparmiðstöð fyrir íbúa á svæðinu sem hafa verið látnir yfirgefa heimili sín. Maðurinn virðist staddur í blokk í Hraunbænum. Stóru svæði í hverfinu hefur verið lokað.

Lögregla rannsakar íbúð byssumannsins

Íbúð byssumannsins við Hraunbæ er eins og eftir sprengingu. Blóðslóð liggur um stigaganginn og för eftir haglabyssuskot sjást á veggjum og hurð nágranna.

Myndband: Lögreglumenn skjóta á íbúð mannsins

Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá sérsveitarmenn frá lögreglunni þegar aðgerðin í Árbæ stóð sem hæst. Meðal annars sést hvar lögreglumenn skjóta að því er virðist reyk- eða táragassprengjum inn í íbúð mannsins sem hafði lokað sig af í íbúð sinni.

Búið að yfirbuga manninn

Búið er að yfirbuga manninn sem skaut af byssu við Árbæ í morgun og er búið að aflétta lokun sem var í stórum hluta hverfisins. Lögreglan tilkynnti íbúum sem höfðu verið fluttir í Árbæjarkirkju þetta nú fyrir skömmu. Ekki er vitað hvort maðurinn sé særður.

„Hann er að koma út“

Nágrannar byssumannsins í Hraunbæ fylgdust með þegar sjúkrabílar fluttu hann á brott.

Skaut tvo lögreglumenn

Einn lögreglumaður særðist í aðgerðum lögreglunnar og sérsveitar ríkislögreglustjóra í Hraunbæ í Árbæ í morgun. Hinn slapp með skrekkinn.

Árbæjarkirkja veitti 10 manns áfallahjálp

"Það er óhætt að segja að þetta hafi verið óvenjulegt morgunverk og óskemmtilegt,“ segir sóknarprestur í Árbæjarkirkju sem tók á móti íbúum í stigagangi byssumannsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×