Hanna Birna segir Samfylkingu háða ESB-umræðunni Jakob Bjarnar skrifar 27. febrúar 2014 11:22 Ískalt er á milli Árna Páls og Hönnu Birnu á þinginu.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra tók til máls á Alþingi nú rétt í þessu, í óundirbúnum fyrirspurnartíma, og beindi máli sínu sérstaklega til Árna Páls Árnasonar formanns Samfylkingarinnar. Honum, sem og öðrum þingmönnum hefur orðið tíðrætt um svik ráðherra Sjálfstæðisflokksins með vísan til samantektar Ríkissjónvarpsins á ummælum þeirra í aðdraganda síðustu alþingiskosninga. Á þingi er mjög tekist á um stjórnartillögu um að slíta beri viðræðum við ESB, sem kunnugt er, og var málið rætt á Alþingi í nótt og lauk umræðum þegar klukkan var farin að ganga fjögur. Þingmenn gera alvarlegar athugasemdir við fundarstjórn forseta og telja fráleitt að ræða nýútkomna skýrslu um Evrópusambandið og aðildarviðræðurnar þegar fyrir liggur ályktun um að slíta beri viðræðunum. Hanna Birna var hvöss nú áðan, og sagði að það væri svo að fari þetta mál af dagskrá, aðildin að Evrópusambandinu, þá standi Samfylkingin einfaldlega í lausu lofti. Þá hafi Samfylkingin ekkert mál til að berjast fyrir lengur. Öll mál Samfylkingar væru farin af borðinu um leið og þetta mál væri ekki lengur til staðar. Hanna Birna sagði að fólk hafi ekki kosið flokka sem höfðu Evrópumálin á dagskrá og formaður Samfylkingarinnar ætti að bera meiri virðingu fyrir skynsemi þjóðarinnar en svo að segja að hún hafi kosið flokka á fölskum forsendum.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum Sjá meira