Sport

Lenti í bílslysi og missti af fluginu til Sotsjí

Felix Neureuther.
Felix Neureuther. vísir/afp
Óvissa er með þátttöku eins besta skíðamanns heims, Þjóðverjans Felix Neureuther, en hann lenti í bílslysi á leið út á flugvöll í dag.

Neureuther ætlaði að fljúga frá München til Sotsjí í dag en missti stjórn á bíl sínum á leið út á flugvöll og klessti á. Mikil hálka er í München.

Farið var með Þjóðverjann til skoðunar á sjúkrahúsi og ljóst að hann fer ekki til Rússlands í dag. Það skýrist væntanlega um helgina hvort hann geti keppt í næstu viku.

Búist var við því að Neureuther myndi berjast um verðlaun í svigi og stórsvigi. Hann vann heimsbikarmót í báðum greinum í síðasta mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×