Jeff Dunham kemur aftur til Íslands Samúel Karl Ólason skrifar 19. febrúar 2014 10:43 Grínistinn Jeff Dunham fyllti Laugardalshöllina tvisvar þegar hann kom síðast til Íslands. Vísir/Getty
Grínistinn Jeff Dunham kemur aftur til Íslands. Hann ferðast nú um heiminn og tekur upp efni fyrir heimildarmynd sem fjallar um starf grínistans víða um heim. Samkvæmt tilkynningu frá Senu vill hann að Ísland verði hluti af því verkefni. Þann 19. apríl mun Dunham vera með uppistand í Eldborgarsal Hörpu, með splunkunýtt efni. Aðrar borgir sem hann heimsækir á ferðalaginu eru Dublin, Abu Dabi og Jerúsalem. „Jeff Dunham sigraði hugi og hjörtu áhorfenda hérlendis í september þegar hann seldi um sex þúsund miða og fyllti Höllina í tvígang, árangur sem enginn grínisti hefur náð hérlendis hvorki fyrr né síðar. Hann var svo hrærður yfir viðtökum áhorfenda og skemmti sér svo vel á sviðinu að sýningarnar lengdust um hálftíma hvor, áhorfendum til ómældrar gleði,“ segir í tilkynningunni. Þá eyddi Dunham nokkrum dögum á Íslandi og skoðaði sig um. „Það er óhætt að segja að hann hafi kolfallið fyrir landi og þjóð, því hann bókstaflega heimtaði að fá að koma aftur og skemmta landsmönnum um páskana sem og að kynna Ísland fyrir aðdáendum sínum um allan heim í gegnum heimildarmyndina sem hann vinnur að.“ „Búið ykkur undir að sjá á ný Jeff, Peanut, Achmed, Walter og öll hin í návígi því þau snúa aftur til lands íss og elda með glænýja sýningu!“
Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Fleiri fréttir „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO Sjá meira