Innlent

Sigmundur Ernir hittir tvífara sinn fyrir

Jakob Bjarnar skrifar
Samstarfsmenn á Pipar. Ekki þarf að velta því lengi fyrir sér af hverju Sævar valdist til að fara með hlutverk Sigmundar Ernis í Áramótaskaupinu.
Samstarfsmenn á Pipar. Ekki þarf að velta því lengi fyrir sér af hverju Sævar valdist til að fara með hlutverk Sigmundar Ernis í Áramótaskaupinu. visir/stefán
Fagnaðarfundir urðu á fyrsta virkum degi nýs árs þegar Sigmundur Ernir Rúnarsson mætti fyrsta sinni til starfa á auglýsingastofunni PIPAR/TBWA þá er hann hitti fyrir tvífara sinn, Ljóta hálfvitann Sævar Sigurgeirsson. Sævar starfar á Pipar, sem texta- og hugmyndasmiður, líkt og Sigmundur Ernir, en hann hefur, auk þess að starfa í hljómsveitinni Ljótu hálfvitarnir fengist við það undanfarin fjögur ár, á undan þessu síðasta, að vera einn höfunda og leika Sigmund Erni í Áramótaskaupinu, þegar Sigmundur Ernir kemur við sögu.

„Þeir sitja nánast hlið við hlið í sömu deildinni; texta og hugmyndadeild,“ segir Valgeir Magnússon framkvæmdastjóri Pipars. „Þeim þótti það náttúrlega báðum skondið, að vera farnir að vinna á sama stað. Annar hefur haft atvinnu af því að leika hinn. Vinnufélögunum fannst það enn skondnara þegar Sigmundur var kynntur inn sem nýr starfsmaður. Sem er skemmtilegt, verið talað um það síðustu ár, af því að Sævar er svo mikilvægur, að það þyrfti eiginlega að klóna hann. Þetta er kannski liður í því.“

Sigmundur Ernir, fyrrverandi alþingis- og sjónvarpsmaður, hóf störf á Pipar strax eftir áramót. Valgeir segir að Sigmundur hafi sýnt því áhuga að komast í auglýsingabransann og það hafi ekki vafist fyrir þeim að ráða hann inn. „Við vissum að hann býr að mikilli reynslu sem getur nýst vel. Á þessari stofu vinna margir sem hafa starfað á fjölmiðlum, þannig að hann kannast við marga sem hér voru fyrir á fleti.“

Auglýsingastofan Pipar hefur beinlínis blásið út að undanförnu og nú starfa þar 46 manns. „Nóg að gera og virðist ekkert lát á því. Ég hef vart undan að sitja fundi með fyrirtækjum sem hafa áhuga á þjónustu okkar,“ segir Valgeir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×