Þjórsárver – vernd eða nýting? Úrsúla Jünemann skrifar 8. janúar 2014 06:00 Núverandi svonefndum umhverfisráðherra er greinilega ásamt öðrum í Framsóknarflokknum ekki mjög annt um umhverfisvernd. Hann er við sama heygarðshorn og flokksbróðir hans, Gunnar Bragi Sveinsson, sem skrifaði tölvupóst um það að það ætti að gæta vel að því að umhverfisverndarsinnar kæmust ekki að. Vinnubrögð Sigurðar Inga eru vægast sagt furðuleg og ekki í anda lýðræðis. Rökstuðningur við aðgerðir hans er það sömuleiðis. Hann segir að með nýjum mörkum friðlands í Þjórsárverum sem hann setti án þess að spyrja kóng né prest sé einmitt verið að friða Þjórsárverin. Samkvæmt greinargerð umhverfisráðuneytis verða nýju mörkin friðlandsins dregin í kringum fyrirhugað lónsstæði, líkt og Landsvirkjun lagði til í sumar. Þannig að Norðlingaölduveitan er ekki úr sögunni. Þrátt fyrir að hún væri sett í verndunarflokk eru menn enn að gjóa augunum á það að þarna verði hægt að virkja. Mörk friðlandsins voru bara færð til, svo einfalt var það. Svo segir Sigurður Ingi að engin mannvirki tengd virkjunum verði innan hins friðlýsta svæðis – auðvitað af því hann færði mörkin til! – og það sem gerist fyrir utan svæðið hafi ekkert með Þjórsárver að gera. Ósköp væri nú æskilegt að maðurinn myndi taka bara eins og einn grunnkúrs í vistkerfisfræði. Þá myndi hann átta sig á því að votlendissvæði eins og Þjórsárver eru afar viðkvæm fyrir öllum breytingum á jaðarsvæðum þess. Til dæmis mun það hafa veruleg áhrif ef vatnsbúskap verður breytt þó það sé fyrir utan mörk friðlandsins. En kannski vill ráðherrann ekki vita það, hann sem trampar um eins og fíll í postulínsbúð og kærir sig ekki um lýðræðislegar ákvarðanir. Ráðherra umhverfismála var að tjá sig um fossana í efri Þjórsá, segist vera búinn að sjá þá og dást að fegurð þeirra. Jafnóðum leggur hann blessun sína yfir að þessar perlur munu spillast með virkjunaráformum hjá Þjórsárverunum. Hvernig getur hann haft slíkt á samviskunni, hann sem hefur það hlutverk að standa vörð um okkar einstöku náttúru?Alþjóðlegir samningar Ísland er aðili að alls konar alþjóðlegum samningum. Mig langar að spyrja hvort menn telji sig þá ekki bundna af þessu á einhvern hátt. Við eigum til dæmis aðild að Ramsar-samningnum. Ramsar-svæði eru kennd við sáttmála um verndun votlendis sem telst hafa alþjóðlegt mikilvægi, sérstaklega sem búsvæði fyrir fugla. Þjórsárver eru stærsta votlendisvin á miðhálendi Íslands og eitt þriggja svokallaðra Ramsar-svæða á Íslandi. Við eigum einnig aðild að Árósasamningnum. Hann var samþykktur á fundi umhverfisráðherra í Evrópu þann 25. júní 1998. Ísland var á meðal þeirra 35 landa sem strax á fyrsta degi lögðu með undirritun sinni nafn sitt við samninginn. Árósasamningurinn er umhverfissamningur. Hann tengir saman umhverfismál og mannréttindi – að sérhver kynslóð eigi rétt á að lifa í umhverfi sem sé fullnægjandi fyrir heilsu og velferð hennar. Settar eru skyldur á ríkin sem standa að samningnum og eru þau réttindi sem ríkin eiga að tryggja almenningi þríþætt og mynda þrjár stoðir samningsins. Fyrsta stoðin mælir fyrir um skyldur ríkja til að tryggja að almenningur hafi aðgang að upplýsingum um umhverfismál. Önnur stoðin skyldar ríkin til að tryggja almenningi rétt til þátttöku í undirbúningi ákvarðana sem snerta umhverfið. Þriðja stoðin snýr að skyldu ríkja til að tryggja almenningi réttláta málsmeðferð í málum sem varða umhverfið. Ákvæði samningsins fela í sér lágmarksreglur. Þau eru almenns eðlis og gefa aðildarríkjunum talsvert svigrúm við innleiðingu þeirra. Hafa aðildarríki samningsins farið mislangt við að innleiða einstök ákvæði hans, sér í lagi það ákvæði er snýr að kæruaðild og hefur Ísland þar dregið lappir hingað til. En hvers virði er það að undirrita alþjóðlega samninga? Mér þykir það svik að undirrita eitthvað og fara svo ekki eftir því og ég skammast mín hálfpartinn fyrir að tilheyra þessari litlu þjóð sem gæti gert svo miklu betur. Við gætum auðveldlega verið leiðandi í umhverfismálum. En græðgin spillir og dregur úr skynsamlegri framtíðarsýn. Fyrir hverja og hvað á að halda áfram að virkja grimmt á kostnað okkar einstöku náttúru? Við eigum meira en nóg af orku fyrir okkar þarfir og gætum notað hana betur en að selja hana fyrir slikk. Mýtuna um að hér sé til endalaus forði af vistvænni orku sem gæti bjargað heiminum verður að kveða niður sem fyrst. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason Skoðun Ég vona að þú gleymir mér ekki Hlynur Már Vilhjálmsson Skoðun Hvert er markmið fulltrúalýðræðis? Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason Skoðun Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu? Grétar Birgisson Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson Skoðun Ferðamannaþorpin - Náttúruvá Þóra B. Hafsteinsdóttir Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvert er markmið fulltrúalýðræðis? Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Ég vona að þú gleymir mér ekki Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu? Grétar Birgisson skrifar Skoðun Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason skrifar Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Flugnám - Annar hluti: Afskiptaleysi stjórnvalda Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Dæmir sig sjálft Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um nægjusemi í heimi neyslubrjálæðis Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Samstarf er lykill að framtíðinni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Kjarnorkuákvæði? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hver erum við? Hvert stefnum við? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Hugtakið valdarán gengisfellt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Sjá meira
Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar
Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar