Meirihlutinn kemur frá gistináttagjaldi Freyr Bjarnason skrifar 3. maí 2014 07:00 Ánægð með að leggja eigi í framkvæmdir til uppbyggingar og nýsköpunar. Mynd/Aðsend „
Við fögnum því alltaf þegar úthlutun á sér stað og að það sé verið að leggja í framkvæmdir bæði til uppbyggingar og til nýsköpunar,“ segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustu. Ferðamálastofa hefur úthlutað 244 milljónum króna til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. Fimmtíu verkefni fengu styrk og fór sá hæsti til Skaftafells, eða tæpar 30 milljónir króna. Rúmum tíu milljónum var úthlutað til smíði nýs stiga við Gullfoss og fimmtán milljónum til endurbóta við Goðafoss, auk fleiri úthlutana. „Það er mjög mikilvægt að það komi fram að af þessum 244 milljónum eru um sextíu prósent framlag gistináttagjaldsins,“ segir Helga aðspurð. Hún tekur fram að úthlutunin sé ótengd áætlun Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem ætlar núna á vor- og sumarmánuðum að leggja til sérstaka fjármuni til verndar þeim svæðum sem eru hvað verst sett. Spurð nánar út í úthlutunina og hvernig fjármununum var dreift á milli verkefna, segist Helga ekki þekkja úthlutunarreglurnar nákvæmlega. „En við fögnum allri uppbyggingu og ég treysti þeirri stjórn sem þarna situr fyrir því að hafa farið faglega yfir allar umsóknir og metið þær út frá eðlilegum forsendum.“
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Sjá meira