FH-vörnin sú besta í 26 ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júní 2014 06:00 Varnarmennirnir öflugu í liði FH. Grafík/fréttablaðið
FH-ingar eru með tveggja marka forystu á toppi Pepsi-deildar karla þegar níu umferðir eru að baki og geta fyrst og fremst þakkað það þéttum varnarleik liðsins en markvörðurinn Róbert Örn Óskarsson hefur aðeins þurft að sækja boltann þrisvar sinnum í netið á fyrstu 810 mínútum tímabilsins. FH hefur enn ekki tapað leik í deildinni í sumar en hefur gert jafntefli í öllum þremur leikjum sínum þar sem Hafnfirðingar hafa fengið á sig mark. FH hefur því unnið alla sex leikina þar sem liðið hefur haldið hreinu, þar af fjóra þeirra 1-0. FH-ingar eru því á toppnum þrátt fyrir að hafa aðeins skorað meira en eitt mark í tveimur af níu leikjum sínum. Það þarf að fara alla leið til ársins 1988 til að finna betri byrjun í varnarleik í efstu deild en Fram fékk aðeins á sig tvö mörk í fyrstu níu leikjunum 1988. FH hefur jafnað afrek ÍA frá 1995 en Skagamenn fengu þá líka aðeins þrjú mörk á sig. Bæði Framliðið frá 1988 og ÍA-liðið frá 1995 urðu Íslandsmeistarar með sannfærandi hætti. Fimm leikmenn hafa oftast nær skipt með sér leikstöðunum fjórum í varnarlínu FH-liðsins í sumar en Hafnarfjarðarliðið missti fyrirliðann, Guðjón Árna Antoníusson, í meiðsli eftir aðeins tvo leiki. Bandaríkjamaðurinn Sean Michael Reynolds hefur leyst af bæði sem bakvörður og miðvörður en samkvæmt tölfræðinni er besta varnarlína FH í sumar þegar Jón Ragnar Jónsson og Böðvar Böðvarsson spila í bakvörðunum og þeir Pétur Viðarsson og Kassim Doumbia eru miðverðir. Þessi varnarlína hefur spilað saman í 249 mínútur í Pepsi-deildinni í sumar og ekki enn fengið á sig mark. Mest munar um Malímanninn Kassim Doumbia en það hafa liðið 349 mínútur milli marka hjá mótherjum FH þann tíma sem hann hefur verið inni á vellinum. Doumbia kom til liðsins fyrir tímabilið og er mikill happafengur fyrir Heimi Guðjónsson. FH-ingar leika sinn tíunda leik í kvöld þegar þeir fá Valsmenn í heimsókn í Kaplakrika en á sama tíma spila Fram og Stjarnan í Laugardalnum. Lið ÍA frá 1995 og lið Fram frá 1988 héldu bæði hreinu í tíunda leik sínum.Fæst mörk á sig í fyrstu 9 leikjunum 1977-2014:2 mörk á sig Fram 19883 mörk á sig FH 2014 ÍA 19954 mörk á sig Valur 2011 ÍA 1994 KR 1991 Valur 1989 Valur 1986 KR 1982 Breiðablik 1981 KR 1979FH-metið:3 mörk á sig 20145 mörk á sig 1994, 2005 og 20066 mörk á sig 2001 og 2009
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti „Ég má ekki segja leyndarmál“ Körfubolti Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn Ellefu mörk í Mosfellsbænum Íslenski boltinn Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Fótbolti „Einvígið fer ekki á einum manni“ Handbolti Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir Handbolti Bellerín braut hjörtu Madrídinga Fótbolti Fleiri fréttir „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Ellefu mörk í Mosfellsbænum Uppgjör: Víkingur R. - Stjarnan 2-1 | Draumabyrjun Víkings Flest mörk í 67 ár Uppgjörið : Breiðablik - Þróttur R. 2-0 | Íslandsmeistararnir reyndust of stór biti Unglingalandsliðsmaður frá Bodö/Glimt til ÍBV Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn „Ef hann er ekki með þá fer allt til fjandans“ Besta-spá kvenna 2026: Baráttan um þann stóra Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Sló met Eiðs Smára Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk „Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ „Fólk má hafa sínar skoðanir“ „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ „Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum Sjá meira