Atli Viðar með mark á hálftíma fresti í síðustu sex leikjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. maí 2014 06:00 Atli Viðar Björnsson er með níu mörk í síðustu sex leikjum sínum í Pepsi-deild karla. Vísir/Getty
Atli Viðar Björnsson hefur ekki fengið margar mínútur í sumar en honum hefur engu að síður tekist að bjarga stigum fyrir FH-liðið í tveimur leikjum í röð. Markakóngur Pepsi-deildarinnar 2013 hefur ekkert kólnað niður þrátt fyrir harðan vetur og það er ekki síst honum að þakka að FH-liðið situr nú í efsta sæti Pepsi-deildarinnar að loknu fimm leikja hraðmóti maímánaðar. Heimir Guðjónsson hefur sent Atla Viðar inná á 64. mínútu í síðustu tveimur leikjum og Atli Viðar hefur launað honum með mikilvægu marki í þeim báðum. Í fyrri leiknum í stöðunni 0-0 á móti ÍBV þar sem Atli Viðar skoraði sigurmarkið á fimmtu mínútu í uppbótartíma. Í seinni leiknum kom Atli Viðar inn á umræddri 64. mínútu þegar FH-liðið var bæði marki og manni undir á útivelli á móti Keflavík. Atli Viðar skoraði jöfnunarmarkið á 83. mínútu. Keflvíkingar ættu reyndar að vera orðnir vanir því að sækja boltann í markið sitt eftir skot frá Atla Viðari sem hefur nú skorað í fimm leikjum í röð á móti Keflavíkurliðinu eða öllum leikjum sínum gegn liði Bítlabæjarins frá því sumarið 2010. Atli Viðar fékk ekkert að koma við sögu í fyrstu þremur leikjum FH-liðsins en með því að skora í báðum sínum leikjum hefur hann nú náð að skora í sex síðustu leikjum sínum í Pepsi-deildinni og það samtals 9 mörk. Það merkilega er að Atli Viðar hefur komið inn á sem varamaður í fjórum af þessum sex leikjum og skorað „úrslitamark“ í þeim öllum eða tvö sigurmörk og tvö jöfnunarmörk. Atli Viðar hefur aðeins spilað í 272 mínútur (af 540 mögulegum, 50 prósent) í þessum sex leikjum sem þýðir að hann hefur skorað á hálftíma fresti í síðustu sex deildarleikjum sínum. Nú er Atli Viðar kominn með 92 mörk í efstu deild og nálgast óðum hundrað marka kúbbinn. Atla Viðar vantar tvö mörk til að jafna Matthías Hallgrímsson í 5. sætinu og þrjú mörk til að ná Hermanni Gunnarssyni í 4. sætinu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sesko innsiglaði þýðingarmikinn sigur Manchester United Enski boltinn Richarlison tryggði Tottenham fyrsta stigið undir stjórn Tudors Enski boltinn „Þessi Kane er stórhættulegur“ Körfubolti Skrýtin ára yfir Val: „Svo kemur þetta og þá ferðu svolítið að efast“ Körfubolti Hefndi fyrir tap Hákonar og stóð uppi sem meistari Sport Segir aðeins eina ástæðu fyrir því að Tudor er enn í starfi Enski boltinn Hetjan mætti í vígahug í viðtal: „Algjört kjaftæði“ Enski boltinn Gamla Skyttan veitti City þungt högg Enski boltinn Tómas Bent þurfti að yfirgefa völlinn eftir þungt höfuðhögg Fótbolti Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Sjá meira