Rændi bíl af öldruðum manni með ofbeldi - lést örfáum dögum síðar 20. janúar 2013 15:12 Samskonar bíll og maðurinn ók á . Þetta er bens 2006 árgerð. Númerið er B-747. Vinsamlegast hafið samband við lögreglu ef þið hafið upplýsingar um málið. „
Hann var skilinn eftir slasaður úti á götu, tvær konur fundu hann og hringdu svo á lögguna í Kópavogi," lýsir dóttir 76 ára karlmanns sem kærði rán á laugardaginn fyrir viku síðan. Maðurinn fannst látinn um fjórum dögum síðar á heimili sínu. Það var á laugardaginn fyrir viku sem maðurinn á að hafa verið að aka Hverfisgötuna í miðborg Reykjavíkur. Dóttir mannsins segir í samtali við Vísi að karlmaður hafi stoppað bifreiðina með því að standa úti á miðri götunni. Því næst hafi hann fari inn í bílinn. Hann á svo að hafa neytt föður konunnar til þess að keyra inni í Kópavog. Málsatvik eru ekki skýr hvað atburðarrásina varðar. Dóttir mannsins segir það þó óumdeilt að tvær konur hafi komið að manninum þar sem hann lá lemstraður í götunni. Meintur árásarmaður var þá horfinn, en hann virðist hafa stolið svartri Benz bifreið mannsins. „Pabbi kærði árásina og bílstuldin þann 12. janúar," segir dóttir mannsins í samtali við Vísi. Hún segir hann hafa gefið skýrslu vegna málsins auk þess sem hlúð var að meiðslum hans. Maðurinn mun hafa handleggsbrotnað í árásinni. „Eftir því sem ég kemst næst er hann svo sendur heim í leigubíl án þess að við, börnin hans, séu látin vita," segir konan sem er ósátt við að aðstandendur hafi ekki verið látnir vita um árásina né að hann hafi leitað sér læknishjálpar. Maðurinn bjó einn að sögn dóttur hans. „Hann lét engan vita hvað hafði gerst," segir hún. Það var ekki fyrr en á miðvikudaginn sem maðurinn fannst látinn á heimili sínu. „Það er talið að hann hafi látist á mánudegi eða þriðjudegi," segir dóttir mannsins. Í ljósi þess hvernig andlát hans bar að var hann krufinn. Bráðabirgðaniðurstöður benda til þess að andlát mannsins hafi borið að með eðlilegum hætti. Hann hafi fengið hjartaáfall. Dóttir mannsins segist þó ekki sannfærð um þá niðurstöðu. Það er engu að síður það sem fram kemur á dánarvottorði mannsins að hennar sögn. Konan gagnrýnir lögreglu harðlega, meðal annars á netinu, fyrir að lýsa ekki eftir bíl föður síns, sem hefur ekki komið í leitirnar síðan faðir hennar varð fyrir árásinni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er rannsókn í fullum gangi vegna málsins og mannsins er leitað. Ekki talið að andlát mannsins tengist ráninu að mati lögreglu, að svo komnu máli.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sjá meira