Íslensk hostel best Hrund Þórsdóttir skrifar 15. júní 2013 14:15 Loft Hostel opnaði í vor og hefur heldur betur slegið í gegn. MYND/LOFT HOSTEL
Íslensk farfuglaheimili verma fyrsta og þriðja sæti heimslista sem er nokkurs konar ánægjuvog gesta sem gista á farfuglaheimilum. Rekstraraðilar hostelanna tveggja koma úr sömu fjölskyldunni. Ólafur Eggertsson hefur rekið farfuglaheimilið á Berunesi í Berufirði ásamt konu sinni, Önnu Antoníusdóttur, síðastliðin 40 ár, en það er nú besta hostel í heimi ef marka má gesti sem gefa einkunnir og umsagnir um gististaði sem heyra undir Hostel International. Gestir sem bóka sig í gegnum vefinn hostel.is, geta gefið dvöl sinni einkunn þegar henni lýkur og ánægja gesta í Berunesi mælist nú 99%, sem setur Berunes í efsta sæti heimslistans. „Svo kitlar það nú ánægjutaugina hjá fjölskyldunni að dóttir okkar, Sigríður, hún er rekstrarstjóri í Reykjavík, þar á meðal á farfuglaheimilinu Loft í Reykjavík og þar er ánægjan það mikil að hún er í þriðja sæti á heimslistanum þannig að fjölskyldan er nokkuð ánægð með sig núna,“ segir Ólafur. Berunes stendur í alfaraleið við þjóðveg númer eitt á Austfjörðum; við Berufjörð norðanverðan. Það hefur verið á lista þeirra heimila sem gefnar eru umsagnir um frá árinu 2008 og hefur ávallt síðan verið í einu af tíu toppsætum listans, sem hlýtur að teljast glæsilegur árangur. En hver er lykillinn að þessari velgengni? „Það er nú eiginlega nær að spyrja gestina og lesa kommentin sem frá þeim berast. En í stórum dráttum er það nú kannski sveitakyrrðin, fallegt umhverfið og við skulum nú segja einhver notalegheit af hálfu fólksins og góður aðbúnaður,“ segir Ólafur. Nánari upplýsingar má nálgast á netsíðunni berunes.is. Ólafur segir sumarið leggjast vel í þau hjónin, lítið sé um ferðaskrifstofuhópa sem bóki langt fram í tímann en að upp úr tuttugasta þessa mánaðar verði starfsemin komin í sumargírinn og verði það að öllum líkindum út ágústmánuð. „Við fengum alveg frábæra sumarkomu en afskaplega seint þannig að náttúran er mjög vel búin núna, mjög fallegt,“ segir Ólafur Eggertsson að lokum.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Sjá meira