Fær ekki að bera nafn afa síns BBI skrifar 4. janúar 2013 20:57 Magnús Ninni Reykdalsson ásamt syni sínum og barnsmóður. Mynd/RS
Það eru margir sem standa í stappi við mannanafnanefnd vegna nafna sem nefndin telur ekki hæfa ungum börnum. Magnús Ninni Reykdalsson var gestur útvarpsþáttarins Reykjavík Síðdegis þar sem hann lýsti átökum sínum við nefndina vegna sonar síns. Magnús vildi skíra son sinn í höfuðið á föður sínum sem bar nafnið Reykdal. Fyrst í stað datt honum ekki annað í hug en nafnið væri leyft enda gat hann bent á nokkur dæmi um að menn hefðu borið nafnið Reykdal gegnum tíðina, m.a. föður sinn. Annað kom þó á daginn. „Við ákváðum við fæðingu í mars 2010 að nefna strákinn og nefndum hann strax Reykdal Máni Magnússon," segir Magnús. „Þegar við ætluðum að fara að skíra nokkrum mánuðum síðar benti presturinn okkur á að kanna hjá mannanafnanefnd hvort nafnið Reykdal væri leyfilegt." Mannanafnanefnd hafnaði umsókn þeirra um nafnið á þeirri forsendu að það endaði á -dal. „Þeir hefðu hins vegar samþykkt -dalur. Ekkert vesen," segir Magnús. „Það sem okkur fannst skrítið var að stuttu síðar var nafnið Kjarval samþykkt. Þá spyr ég: Hver er munurinn á -val og -dal?" bætir hann við. Magnús taldi í þættinum upp nokkur dæmi þess að menn hefðu verið skírðir Reykdal í gegnum tíðina. „En núna, væntanlega eftir síðustu breytingar árið 1996 hafa þeir ákveðið að eiginnöfn megi ekki enda á -dal," segir Magnús. Málið er núna statt hjá Ögmundi Jónassyni. „Ég sendi honum póst í maí og fékk þau skilaboð að það ætti að skoða málið í ráðuneytinu," segir Magnús en hefur ekki heyrt neitt síðan. Sonur Magnúsar er því skráður Drengur í þjóðskrá. „Hann er einn af þessum hundrað Drengjum í þjóðskrá. Mér skilst það séu hundrað Drengir og hundrað Stúlkur. Þau standa líkalega öll í svipaðri baráttu," segir Magnús. „Það er okkur hjartans mál að hann fái að heita Reykdal," segir Magnús og bætir við að málið leggist þungt á foreldrana. „Okkur finnst ekki að mannanafnanefnd eigi að ákveða hvað barnið okkar á að heita. Viðtalið við Magnús í heild sinni má nálgast á hlekknum hér að ofan. Skemmst er að minnast baráttu Bjarkar Eiðsdóttur, ritstjóra Séð og Heyrt, og dóttur hennar um nafnið Blær. Baráttan hefur vakið umtalsverða athygli um allan heim, en stúlkan færi ekki að heita Blær og hefur höfðað mál gegn innanríkisráðherra vegna þess.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Sjá meira