Yfir hundrað kynferðisafbrotamál á borð lögreglunnar frá áramótum VG skrifar 3. apríl 2013 14:54 Nefndarmenn kynna tillögur sínar. Mynd GVA
Undirnefnd allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, sem fjallar um kynferðisbrot gegn börnum, tilkynnti í dag að hún legði meðal annars til að fjárveitingar til rannsóknardeilda lögreglunnar og embættis ríkissaksóknara yrðu auknar. Ástæðan er meðal annars sú að á þremur fyrstu mánuðum ársins komu 101 kynferðisafbrotamál inn á borð lögreglunnar, en til samanburðar þá bárust 141 mál til lögreglu allt síðasta ár. Aukningin má helst rekja til umfjöllunar Kastljóss um barnaníðinginn Karl Vigni Þorsteinsson. Nefndin kynnti tillögur sínar á Alþingi í dag um úrræði til að bregðast við auknum fjölda kynferðisbrotamála gegn börnum. Sérstök undirnefnd skipuð fulltrúum meirihluta og minnihluta hefur unnið að tillögunum að undanförnum mánuðum en það eru þau Þuríður Bachmann (V), Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (D), Siv Friðleifsdóttir (B) og Skúli Helgason (S) sem eiga sæti í nefndinni. Alls leggur nefndin fram tíu atriði sem hún vill að verði skoðuð og metin. Meðal annars beitingu á tálbeitum. Þorgerður Katrín sagði á fundinum að hún vissi vel að úrræðið væri afar umdeilt. „En við viljum að þetta verði skoðað," bætti hún við. Einnig var lagt til að metið yrði í samstarfi við sveitarfélögin hvort það væri æskilegt að stofna gagnagrunn með upplýsingum um dæmda kynferðisafbrotamenn sem yrði aðgengilegur vinnuveitendum sem ráða fólk til starfa með börnum og ungmennum. Þá leggur nefndin einnig til að Barnahús fái auknar fjárveitingar og að dómara verði hvattir til þess að nýta sér þjónustu Barnahúss. Athygli vekur að Barnahús er þegar vel nýtt af flestum héraðsdómum landsins, einn sker sig þó úr, sem er Héraðsdómur Reykjavíkur. Aðspurð sagðist nefndin það umhugsunarvert hvort það ætti ekki að skylda dómstóla til þess að nýta sér þetta úrræði, sem nefndarmennirnir vildu meina að hefði gefið verulega góða raun í gegnum tíðina, og upplýst kynferðisbrot að fullu. Skúli upplýsti að vinna þessu tengdu væri þegar í gangi í innanríkisráðuneytinu.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira