Niðurstaða EFTA dómstólsins ekki áfellisdómur yfir samningaleiðinni Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. febrúar 2013 14:37 Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, heldur lokaræðu sína.
Nýfengin niðurstaða í Icesave-málinu fyrir EFTA dómstólnum er ekki áfellisdómur yfir þeirri leið samninga sem til stóð að fara frá haustmánuðum 2008, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og fráfarandi formaður Samfylkingarinnar, í ræðu á landsfundi flokksins í Vodafonehöllinni í dag. „Með nýfenginni niðurstöðu í Icesave, þar sem fullnaðarsigur vannst og fjárhagslegri og efnahagslegri óvissu Íslands vegna málsins var endanlega eytt hafa efnahagslegar stoðir endurreisnarinnar verið treystar gríðarlega. Öll hljótum við að fagna þessari niðurstöðu mjög, enda gefur hún okkur enn frekari tækifæri til að sækja fram," segir hún. „Höfum í huga að Íslensk stjórnvöld stóðu ávallt föst á þeim sjónarmiðum, sem EFTA dómstóllinn hefur nú viðurkennt, en dómstólaleiðin var ekki fær fyrr en í lok þessa ferils vegna frumkvæðis ESA. Dómstólaleiðinni fylgdi einnig gríðarleg áhætta eins og raunar allir viðurkenna. Samningaleiðin var ábyrga leiðin, leiðin sem öll ábyrg stjórnvöld urðu að feta, rétt eins og Alþingi samþykkti strax árið 2008. Ríkisstjórnin gat ekki leyft sér að taka mikla áhættu í málinu enda um gríðarlega hagsmuni þjóðarinnar að tefla," sagði Jóhanna. Hún sagði að ekki hefði verið boðið uppá annað. Landið hafi verið að lokast, lánshæfismatsfyrirtæki sett Ísland í ruslflokk, Íslendingar ekki átt neina bandamenn í alþjóðasamfélaginu, ekki einu sinni Norðurlöndin hafi viljað veita okkur aðstoð né AGS, ef við ætluðum bara að gefa alþjóðasamfélaginu langt nef eins og margir vildu. „Við getum spurt okkur hvar væri endurreisnin í dag ef ríkisstjórnin hefði ekki sýnt samstarfsvilja og olnbogað sig áfram í málinu. Hver hefði kostnaður samfélagsins orðið við að taka áhættuna og segja strax í upphafi, við borgum ekki. Ég hefði ekki viljað bera ábyrgð á þeirri vegferð og stöðu málsins, hefði niðurstaða dómstólsins orðið á annann veg og hundruð milljarða hefðu fallið á ríkissjóð vegna málsins, en siðustu icesavesamningarnir hefðu aðeins verið brot af þeirri fjárhæð. Þannig hefðu ábyrg stjórnvöld ekki getað hagað sér - aðeins ábyrgðarlaus stjórnarandstaða getur leyft sér slíkan munað," sagði Jóhanna.
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Fleiri fréttir Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Sjá meira