Engar uppsagnir yfirvofandi hjá Glitni og LBI Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. febrúar 2013 16:54
Engar uppsagnir eru yfirvofandi hjá slitastjórnum Glitnis og LBI (gamla Landsbankanum). Þetta fékkst staðfest hjá fulltrúum beggja slitastjórna í dag. Átta var sagt upp störfum hjá slitastjórn Kaupþings í vikunni líkt og fjallað var um á Vísi fyrr í dag. Fréttastofa tók stöðuna á slitastjórnum LBI og Glitnis. „Það eru engar uppsagnir í gangi hjá Glitni," segir Steinunn Guðjbartsdóttir, hjá slitastjórn Glitnis. Hún segir þó að eftir því sem verkefni dragist saman eða klárist muni það auðvitað hafa áhrif á fjölda starfsmanna. „Það gera sér allir grein fyrir því að Glitnir er í slitameðferð. Það gengur mjög vel að koma eignum í verð og annað slíkt. Eftir því sem að tíminn líður er það eðli slitanna að starfsemi dregst saman. Það er verið að vinna niður eignasafnið, koma eignum í verð og klára þetta," segir Steinunn. Páll Benediktsson, talsmaður slitastjórnar LBI, tók í svipaðan streng. „Það hafa ekki verið neinar sérstakar uppsagnir hjá okkur. Starfsfólki hefur heldur fækkað á undanförnum misserum og þá vegna þess að fólk hefurfarið í önnur störf og ekki verið ráðið í staðinn." Eftir uppsagnir starfa um 70 manns hjá slitastjórn Kaupþings, um 40 hjá slitastjórn Glitnis en starfsmenn slitastjórnar LBI eru á bilinu 65-70. Þar af starfa 12-14 í Bretlandi og þrír í Hollandi.
Tengdar fréttir Átta sagt upp hjá slitastjórn Kaupþings Átta starfsmönnum hefur verið sagt upp störfum hjá slitastjórn Kaupþings. Feldís Lilja Óskarsdóttir, sem sæti á í slitasjórn, staðfesti þetta í samtali við Vísi í dag. 1. febrúar 2013 13:07 Mest lesið Skotin með gúmmíkúlu í beinni frá mótmælunum Erlent Ísraelsher stöðvaði skútuna og handtók áhöfnina Erlent Íslendingur á válista CIA árið 1970 Innlent „Erum ekki að lýsa yfir stuðningi við Trump“ Innlent Mjög áhyggjufull yfir tilfærslu ráðuneytisins Innlent Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Innlent Telja Ísraelsher hafa umkringt bát Thunberg Erlent Þotur notaðar í flugi Icelandair til Nuuk Innlent Ekki hægt að nota rafræn skilríki Innlent Slökktu eld á svölum á fjórðu hæð í Engihjalla Innlent Fleiri fréttir Slökktu eld á svölum á fjórðu hæð í Engihjalla Ekki hægt að nota rafræn skilríki Mjög áhyggjufull yfir tilfærslu ráðuneytisins Frestun fjármagns til verkmenntaskóla, mótmæli í LA og fjölmenningarhátíð Komu í veg fyrir sýruleka á Akureyrarhöfn „Erum ekki að lýsa yfir stuðningi við Trump“ Þotur notaðar í flugi Icelandair til Nuuk Íslendingur á válista CIA árið 1970 Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Menningarveisla í allt sumar á Sólheimum Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Alvarlegt ástand í Los Angeles og opnun nýs Konukots Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Heilbrigðisstofnun Suðurnesja skilaði 800 milljónum til ríkissjóðs Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Hermenn í Los Angeles, mylguráðstefna og síðasti leikur Arons Pálmarssonar Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Evrópusambandið, rétttrúnaður og endurskoðun veiðiráðgjafarinnar Þrír reyndu að komast undan lögreglu Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Fleiri börn deyja á Gasa og óttast um fornminjar í Laugarnesi Ók á gangandi vegfarenda og keyrði burt Umræðu um bókun 35 aftur frestað Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Sjá meira
Átta sagt upp hjá slitastjórn Kaupþings Átta starfsmönnum hefur verið sagt upp störfum hjá slitastjórn Kaupþings. Feldís Lilja Óskarsdóttir, sem sæti á í slitasjórn, staðfesti þetta í samtali við Vísi í dag. 1. febrúar 2013 13:07