Björt framtíð tekur risastökk samkvæmt Gallup 1. febrúar 2013 18:14 Heiða Kristín Helgadóttir og Guðmundur Steingrímsson.
Verulegar breytingar eru á fylgi flokkanna frá síðasta mánuði samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups. Þar kemur fram að tæplega 19% segjast myndu kjósa Bjarta framtíð færu kosningar til Alþingis fram í dag og er þetta aukning um sjö prósentustig milli mánaða. Flokkurinn fengi þannig næstmest fylgi yrðu þetta úrslit kosninga. Fylgi Samfylkingarinnar minnkar um þrjú prósentustig milli mánaða, en tæplega 16% segjast myndu kjósa Samfylkinguna færu kosningar til Alþingis fram í dag. Þetta er minnsta fylgi sem Samfylkingin hefur mælst með síðan í nóvember 1999. Fylgi við Framsóknarflokkinn eykst um eitt prósentustig, en rúmlega 14% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs minnkar um eitt prósentustig milli mánaða og mælist fylgi hans nú nær 8%. Fylgi annarra framboða er nær óbreytt milli mánaða. Tæplega 36% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, rúmlega 2% segjast myndu kjósa Hægri Græna, liðlega 2% Dögun, sama hlutfall myndi kjósa Pírata og 1% segist myndi kjósa Samstöðu. Rösklega 12% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og tæplega 10% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag. Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um tvö prósentustig milli mánaða og mælist stuðningur við stjórnina nú 30%. Spurt var: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa? En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu? Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna? Styður þú ríkisstjórnina?
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira