Mótmæla rétttrúnaðarkirkju á Mýrargötu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 17. október 2013 07:00 Fyrirhuguð bygging rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar við Mýrargötu var sýnd um þriðjungi of lág á vef Reykjavíkurborgar. Íbúasamtök Vesturbæjar gerðu meðfylgjandi mynd sem á að sýna rétt hlutföll. „
Flutningur kirkjunnar á aðra lóð mun bjarga hlutföllum byggðamynsturs hverfisins og að okkar mati koma í veg fyrir skipulagsslys,“ segir stjórn Íbúasamtaka Vesturbæjar í bréfi þar sem skorað er á skipulagsráð Reykjavíkur að finna aðra lóð en á Mýrargötu fyrir rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna. Athugasemd íbúasamtakanna er ein margra sem borginni bárust vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi svo rússneska rétttrúnaðarkirkjan geti byggt ríflega eitt þúsund fermetra kirkju með safnaðarheimili á lóð sem borgin úthlutaði. Aðeins fjögur bílastæði fylgja byggingunum. Stjórn íbúasamtakanna kveðst hafa gengið á fund prests kirkjunnar og aðstoðarmanns hans sem sé rússneskur listfræðingur. „Þau segjast því miður ekki geta haft bygginguna lægri en sem nemur 22 metrum undir kross þar sem á þeim hvíli sú skylda að virða hefðbundinn stíl og þau hlutföll sem tengjast honum. Þau segja að þau geti ekki byggt í öðrum umfangsminni stíl og að turnarnir verði að vera þrír sem tákn fyrir hina heilögu þrenningu,“ útskýrir stjórn íbúasamtakanna, sem kveður Rússana eftir þrjá fundi hins vegar hafa sagst myndu sætta sig við að byggja á annarri lóð ef hún væri í boði – og ef borgin greiddi útlagðan hönnunarkostnað á núverandi lóð. „Lóðin sem þeim hefur verið úthlutað við Nýlendugötu er óheppileg þar sem stíll kirkjunnar og stærð er í miklu ósamræmi við nærliggjandi byggð,“ segja íbúasamtökin. „Kirkjan yrði nýtt einkenni og forystumannvirki fyrir Gamla Vesturbæinn, undanþegin öllum höfuðmarkmiðum, eins og segir í deilskipulagstillögunni.“Rússneska rétttrúnaðarkirkjan sem á að rísa milli Mýrargötu og Nýlendugötu var kynnt í þessari stærð á vef Reykjavíkurborgar. Þannig sýnist hún ekki 22 metrar heldur um 15 metrar segir formaður íbúasamtakanna, Birgir Þröstur Jóhannsson arkitekt.Nokkrir einstaklingar mótmæla einnig kirkjubyggingunni, segja hana meðal annars of stóra og óttast bílastæðaskort. Mun fleiri, sem bera bæði rússnesk og íslensk nöfn, lýsa hins vegar stuðningi við bygginguna. „Ég álít að kirkjubyggingin, sem staðsett verður nálægt sjónum og skreytt með miðalda skandinavískum skreytingum og útskurði, verði skrautfjöður fyrir borgina og í samræmi við gamlar íslenskar hefðir,“ segir í 53 samhljóða stuðningsbréfum þar sem útliti kirkjunnar er sagt svipa til byggingar Listasafns Íslands. „Þetta virðist vera gott, friðsælt og trúað fólk en Íslendingar hafa sýnt því dónaskap og lögbrot með því að krafsa á kirkjuna og brjóta útstillingarglugga þeirra um kirkjuhald,“ segir hálfníræð kona sem búið hefur í hverfinu frá því hún fæddist 1928. „Bygging kirkjunnar hefur átt sér langan aðdraganda, meðal annars með helgun reitsins við hátíðlega athöfn fyrir fáeinum árum og nefndinni þykir ljóst að þetta hús verði til mikillar prýði,“ segir Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga sem ræddi málið í september. Málið var tekið fyrir á fundi skipulagsráðs í gær en afgreiðslu þess frestað.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira