Rannsaka áhrif skólamáltíða á athygli Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 8. október 2013 06:00 Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor í næringarfræði.
Áhrif skólamáltíða á frammistöðu barna í skólanum og hegðun þeirra í skólastofunni verða rannsökuð í samnorrænni rannsókn nú í vetur. Hér á landi munu 200 börn í 5. bekk taka þátt í rannsókninni að því er Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor í næringarfræði, greinir frá. „Það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr þessu. Það er ótrúlega lítið til af rannsóknum um þýðingu skólamáltíða strax eftir að þeim lýkur,“ segir Ingibjörg. Ljósmyndir af matardiskum barnanna verða notaðar til að meta gæði og magn þess matar sem skammtað er á diskinn. Myndir verða einnig teknar af því sem kann að vera skilið eftir. Hegðun og athygli nemenda í skólastofunni verður metin með kerfisbundnum aðferðum einni til tveimur klukkustundum eftir skólamáltíðina. „Rannsakendur munu sitja á eins lítið áberandi hátt í skólastofunni og hægt er og mæla nokkrum sinnum á klukkustund hvort börnin gera það sem þeim er uppálagt. Þetta er bara stöðumat en við fáum upplýsingar sem hægt verður að vinna með, til dæmis um þætti sem mættu betur fara.“ Að sögn Ingibjargar er rannsókninni einnig ætlað að svara því hvaða væntingar börn hafi til skólamáltíða og hvort skipulag skólamáltíða hafi áhrif á fæðuvalið. Heildarmataræði barnanna verður jafnframt metið og fá foreldrar þeirra spurningalista.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Sjá meira