Íslenska landsliðið í knattspyrnu náði ótrúlegu jafntefli í Bern í gær eftir að hafa lent 1-4 undir í leiknum. Strákarnir sýndu mikinn karakter og skoruðu þrjú mörk á síðustu 34 mínútum leiksins.
Jóhann Berg Guðmundsson var besti maður í íslenska liðsins en ekki sá eini til að fá 9 í einkunn. Hér fyrir neðan má sjá mat Fréttablaðsins á frammistöðu strákanna í leiknum.
Hannes Þór Halldórsson, markvörður 4
Fékk á sig fjögur mörk og hefði líklega átt að gera betur í þriðja markinu. Bauð ekki upp á neitt aukalega og hefur átt betri leiki.
Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður 3
Átti erfitt uppdráttar og gaf Sviss fjórða markið sitt með ótrúlegum klaufaskap. Gerði lítið í sókninni.
Kári Árnason, miðvörður 6
Barðist eins og grenjandi ljón og kom oft til bjargar en tefldi stundum á tæpasta vað.
Ragnar Sigurðsson, miðvörður 6
Varðist oft vel og skynsamlega og gaf aldrei tommu eftir í erfiðri baráttu við spræka sóknarmenn Sviss.
Ari Freyr Skúlason, Vinstri bakvörður 3
Var mjög slakur. Missti menn framhjá sér og lenti illa í því er Sviss jafnaði leikinn. Barðist en átti lítið erindi í þessa baráttu.
Jóhann Berg Guðmundsson, Hægri kantur 9
Skoraði eina flottustu þrennu lengi og þaggaði niður í mörgum gagnrýnisröddum. Þær áttu þó algjörlega rétt á sér. Virðist vera í mikilli framför, sem eru gleðitíðindi.
Aron Einar Gunnarsson, Miðjumaður 5
Ekki besti leikur fyrirliðans. Missti menn á bak við sig og var í vandræðum með að fóta sig á löngum köflum.
Helgi Valur Daníelsson, Miðjumaður 2
Átti ákaflega daprar 45 mínútur svo ekki sé fastar að orði kveðið. Gerði afar fátt jákvætt og var stór leki á miðjunni. Hann hreinlega hlýtur að hafa spilað sig úr landsliðinu í þessum leik.
Birkir Bjarnason, Vinstri kantur 8
Var magnaður frá upphafi til enda. Leiddi með góðu fordæmi allan leikinn, lamdi á heimamönnum, labbaði yfir þá og spilaði vel. Stórkostlegur leikmaður og til fyrirmyndar að öllu leyti.
Gylfi Þór Sigurðsson, framl. miðjumaður 9
Brjáluð vinnsla og gæði í öllum hans leik. Tvær stórkostlegar stoðsendingar, var alltaf að pressa og búa eitthvað til.
Kolbeinn Sigþórsson, framherji 8
Vann nánast hvert einasta skallaeinvígi í leiknum og skoraði frábært mark. Lét varnarmenn Sviss aldrei í friði og var ógnandi út allan leikinn. Mikil vinnsla, dugnaður, kraftur og gæði.
Eiður Smári Guðjohnsen 7
(kom inn fyrir Helga Val á 46. mín) Átti enn og aftur flotta innkomu. Barðist vel og kom með mikið líf. Hefði mátt byrja leikinn og hlýtur að gera það á þriðjudag.

