Hundruð milljóna þarf til að bæta tap Svavar Hávarðsson skrifar 11. júní 2013 07:00 Enn á eftir að koma í ljós hvort frekar þurfi að draga úr framleiðslu vegna vanda við niðurdælingu jarðhitavatns. fréttablaðið/valli
Vegna minni afkastagetu þarf Orkuveita Reykjavíkur að kaupa orku frá Landsvirkjun. Fyrsta árið kostar það 163 milljónir. Stjórnarformaður segir að staðið verði við gerða samninga við Norðurál og hagsmunir almennings varðir. Hugsanlegt tekjutap Orkuveitu Reykjavíkur vegna sex megavatta minni afkastagetu Hellisheiðarvirkjunar er tæplega fjórtán milljónir króna á mánuði ef ekki er gripið til aðgerða. Það eru tæplega 163 milljónir á ársgrundvelli en sú upphæð tvöfaldast á hverju ári án aðgerða. Þetta kemur til vegna nauðsynlegra kaupa Orkuveitunnar á orku frá Landsvirkjun til að vega upp framleiðslutapið. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær þá telja vísindamenn Orkuveitunnar að afköst Hellisheiðarvirkjunar muni falla um sem jafngildir sex megavöttum á ári að meðaltali. Því til viðbótar gæti frekari samdráttur komið til vegna vandkvæða við niðurdælingu á vatni. Samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins eru verðmæti sex megavatta á ári, miðað við raforkuverð Landsvirkjunar, tæplega 14 milljónir á mánuði. Því þarf Orkuveitan að kaupa af Landsvirkjun viðbótarrafmagn fyrir 163 milljónir í eitt ár. Sú upphæð tvöfaldast á hverju ári, án aðgerða. Hugmynd Orkuveitunnar er hins vegar að leggja gufulögn frá Hverahlíð til að halda uppi afköstum, en sú framkvæmd er ýmsu háð. Hún gæti þó verið komin í gagnið haustið 2014 ef stjórn ákveður að fara þá leið, og tafir verða ekki vegna nýs umhverfismats svo dæmi sé tekið. Haraldur Flosi Tryggvason.fréttablaðið/GVA Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitunnar, segir rekstur og orkuöflun fyrir jarðgufuvirkjanir vera flókið langtímaverkefni. Nú liggi fyrir neikvæðar vísbendingar um vinnslugetu þess svæðis sem ætlað var að stæði undir Hellisheiðarvirkjun. Það kalli á að leitað verði lausna sem miða að frekari orkuöflun. Til bráðabirgða virðist það góð lausn að leggja gufulögn frá Hverahlíð að Hellisheiðarvirkjun og fá þannig samtímis vinnslusögu til að meta hvort mögulegt er að virkja þar frekar. „Rekstur jarðgufuvirkjunar er ofurseldur áhættu af þessum toga, auðlindin er jú neðanjarðar og háð duttlungum náttúrunnar. Það á eftir að koma í ljós hvort sú staða sem uppi er núna hafi varanleg áhrif á tekjumyndun virkjunarinnar. Alla kosti verður að skoða af yfirvegun í þessu sambandi, þetta er úrvinnslumál.“ Um kaup á raforku frá Landsvirkjun segir Haraldur Flosi að hagstæðir samningar séu í gildi á milli fyrirtækjanna. Þeir samningar eru í gildi næstu árin. Spurður um skuldbindingar Orkuveitunnar vegna Hellisheiðarvirkjunar segir Haraldur Flosi að „enn sem komið er sé ekkert uppi á borðinu sem kippi stoðunum undan rekstri þessara virkjana“ og nefnir í því samhengi orkuríkt svæði við Gráuhnúka sem nú er nýtt til niðurdælingar á vatni úr virkjuninni. „En gagnvart Norðuráli vil ég segja að við ætlum okkur að standa við gerða samninga. Gagnvart almenningi vil ég ítreka að unnið verður að umhverfislegum og fjárhagslegum hagsmunum eins og mögulega er hægt.“
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Sjá meira