Raunhæf leið að upptöku evru Björgvin G. Sigurðsson skrifar 22. mars 2013 06:00 Vorið 2009 boðaði formaður Sjálfstæðisflokksins „trúverðuga leið að upptöku evru“ með stuðningi AGS og ESB. Hjáleið að myntbandalaginu án aðildar að Evrópusambandinu sjálfu. Hugmyndin var ein margra óraunhæfra um þægilega skyndilausn á gjaldmiðilsmálum okkar, enda hefur ekkert heyrst af henni síðan. Upptaka evru í gegnum aðild að ESB er eini valkosturinn við verðlitla, verðtryggða krónu í höftum. Það hefur ítrekað verið staðfest. Það merkir hins vegar ekki að við þurfum að bíða í mörg ár frá aðild þar til við getum notið kosta myntbandalagsins. Strax í upphafi aðildarferlisins munum við njóta ávinnings. Um leið og við tökum skýra ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild breytist staða okkar og staða krónunnar. Skyndilega munu erlendir krónueigendur vilja halda í krónurnar sínar, því þær munu í fyllingu tímans breytast í evrur. Sá mikli þrýstingur sem nú er á gengi krónunnar vegna vilja útlendinga til að skipta krónum fyrir gjaldeyri mun minnka og afnám hafta verða auðveldara. Næsta skref verður svo að Ísland kemst inn í myntsamstarf aðildarríkjanna, ERM II. Um leið og það gerist mun krónan njóta stuðningsumgjarðar af hálfu Seðlabanka Evrópu og enn frekari ávinningur peningalegs stöðugleika koma í ljós. Verðbólgan verður þá minni og við getum hafist handa um að létta verðtryggingaroki húsnæðislánanna af landsmönnum. Sú skipti yrðu möguleg með skiptiútboði þar sem útistandandi skuldabréfum Íbúðalánasjóðs og annarra lánveitenda yrði skipt fyrir evrubréf með föstum vöxtum án verðtryggingar. Í kjölfarið væri hægt að breyta lánskjörum almennings til samræmis við það. Mikið liggur við að stöðva verðbólguna og aftengja vítahring verðtryggingarinnar. Veik staða krónunnar, verðbólgan og verðtryggingin eru að fara langt með að eyða eignum heimilanna. Hægt er, með aðildinni að EMRII, að losa lántakendur við verðtrygginguna strax á fyrsta ári ESB-aðildar og lenda varanlegri lausn á þeirri ógn við efnahagslegt sjálfstæði landsins sem felst í veikburða peningakerfi. Þetta er raunhæf leið að upptöku evru. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun ADHD og hvatvísi Hjördís María Karlsdóttir Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Dómar eiga að hafa tilgang Védís Einarsdóttir Skoðun Getum við raunverulega skipulagt borgina? Darío Nunez Salazar Skoðun Ábyrgt fólk segir satt og rétt frá Gunnsteinn R. Ómarsson Skoðun Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir skrifar Skoðun Tölum um samfélagið okkar Jónína Margrét Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Umferðin vex í Hafnarfirði – hvað ætlum við að gera öðruvísi? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Hagsmunir launafólks og Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson skrifar Skoðun Dómar eiga að hafa tilgang Védís Einarsdóttir skrifar Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Mannréttindi í hættu í yfirfullum fangelsum Tinna Eyberg Örlygsdóttir skrifar Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Stóra sósíalíska skinkumálið Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir skrifar Skoðun ADHD og hvatvísi Hjördís María Karlsdóttir skrifar Skoðun Getum við raunverulega skipulagt borgina? Darío Nunez Salazar skrifar Skoðun Ábyrgt fólk segir satt og rétt frá Gunnsteinn R. Ómarsson skrifar Skoðun Jafnrétti í litlu samfélagi: Áskoranir og ábyrgð Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun Fjárfesting í hvíld skilar sér í meiri framleiðni Ellen Calmon skrifar Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Við stöndum vörð um Múlaþing Jónína Brynjólfsdóttir,Eiður Ragnarsson skrifar Skoðun Viðsnúningur í rekstri, hver borgar? Stefán Þór Eysteinsson,Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir skrifar Skoðun Fagmennska, forgangsröðun og framtíð þróunarsamvinnu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti gagnast ekki atvinnulífinu Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Það sem enginn segir þér um að flytja til annars lands Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Hvers vegna og hvernig háskólanám? Hallur Þór Sigurðarson skrifar Skoðun Frá þekkingu til verðmæta – hvar slitna tengslin? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ilmurinn er svo lokkandi Einar Helgason skrifar Skoðun Við ræktum arfa og vonumst eftir rósum Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Lækkum leikskólagjöld og tökum upp 100% syskinaafslátt Tinna Berg Rúnarsdóttir skrifar Sjá meira
Vorið 2009 boðaði formaður Sjálfstæðisflokksins „trúverðuga leið að upptöku evru“ með stuðningi AGS og ESB. Hjáleið að myntbandalaginu án aðildar að Evrópusambandinu sjálfu. Hugmyndin var ein margra óraunhæfra um þægilega skyndilausn á gjaldmiðilsmálum okkar, enda hefur ekkert heyrst af henni síðan. Upptaka evru í gegnum aðild að ESB er eini valkosturinn við verðlitla, verðtryggða krónu í höftum. Það hefur ítrekað verið staðfest. Það merkir hins vegar ekki að við þurfum að bíða í mörg ár frá aðild þar til við getum notið kosta myntbandalagsins. Strax í upphafi aðildarferlisins munum við njóta ávinnings. Um leið og við tökum skýra ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild breytist staða okkar og staða krónunnar. Skyndilega munu erlendir krónueigendur vilja halda í krónurnar sínar, því þær munu í fyllingu tímans breytast í evrur. Sá mikli þrýstingur sem nú er á gengi krónunnar vegna vilja útlendinga til að skipta krónum fyrir gjaldeyri mun minnka og afnám hafta verða auðveldara. Næsta skref verður svo að Ísland kemst inn í myntsamstarf aðildarríkjanna, ERM II. Um leið og það gerist mun krónan njóta stuðningsumgjarðar af hálfu Seðlabanka Evrópu og enn frekari ávinningur peningalegs stöðugleika koma í ljós. Verðbólgan verður þá minni og við getum hafist handa um að létta verðtryggingaroki húsnæðislánanna af landsmönnum. Sú skipti yrðu möguleg með skiptiútboði þar sem útistandandi skuldabréfum Íbúðalánasjóðs og annarra lánveitenda yrði skipt fyrir evrubréf með föstum vöxtum án verðtryggingar. Í kjölfarið væri hægt að breyta lánskjörum almennings til samræmis við það. Mikið liggur við að stöðva verðbólguna og aftengja vítahring verðtryggingarinnar. Veik staða krónunnar, verðbólgan og verðtryggingin eru að fara langt með að eyða eignum heimilanna. Hægt er, með aðildinni að EMRII, að losa lántakendur við verðtrygginguna strax á fyrsta ári ESB-aðildar og lenda varanlegri lausn á þeirri ógn við efnahagslegt sjálfstæði landsins sem felst í veikburða peningakerfi. Þetta er raunhæf leið að upptöku evru.
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar
Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson skrifar
Skoðun Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir skrifar
Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir Skoðun