Fjöldi lista sprengir kjörseðla 13. febrúar 2013 06:00 Jóhannes Tómasson.
Nauðsynlegt er talið að gera breytingar á kosningalögum vegna fyrirsjáanlegs fjölda framboðslista í alþingiskosningunum 27. apríl. „Fyrirmæli laganna varðandi kjörseðilinn þýða það að framboðum er stillt upp hlið við hlið,“ segir Jóhannes Tómasson, upplýsingafulltrúi innanríkisráðuneytisins. Miðað við stærð núverandi kjörseðils sé aðeins hægt að hafa átta framboðslista á seðlinum. „Miðað við fyrirspurnir og hringingar sjá menn fyrir sér að framboðin gætu orðið það mörg að það myndi valda vandræðum við að útbúa kjörseðilinn eins og lögin mæla fyrir í dag,“ segir Jóhannes sem kveður stöðuna eins og hún er í dag geta þýtt fimmtán möguleg framboð þótt ekkert sé ljóst um það enn þá. „Það þarf blað sem tekur hálft skrifborð til að ná þeirri breidd,“ bendir Jóhannes á. Lausnin sem menn sjá fyrir sér felst að sögn Jóhannesar í lagabreytingu sem heimilar að hafa tvær raðir með framboðslistum á kjörseðlinum; efri röð og neðri röð. Þá mætti hafa allt að sextán lista á seðlinum. Þótt líklega verði framboðslistarnir færri en fimmtán þegar upp er staðið er jafnvel enn von á fleirum því framboðsfrestur rennur ekki út fyrr en fimmtán dögum fyrir kjördag. Í það eru enn tveir mánuðir. Jóhannes bendir á að hins vegar sé stefnt að því að Alþingi ljúki störfum um miðjan mars. Samþykkja þurfi lagabreytinguna fyrir þann tíma. „Það má segja að við séum einfaldlega að reyna að hafa vaðið fyrir neðan okkur ef þessi yrði staðan,“ segir Jóhannes. Auk þess sem þetta mál hefur verið til skoðunar í innanríkisráðuneytinu er lagabreytingin nú undirbúin hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. - gar
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu Sjá meira