Sport

Bjart yfir heimi bardaganna

 John Kavanagh sést hér á æfingu með Gunnari Nelson en þeir hafa æft stíft undanfarnar vikur fyrir komandi bardaga í UFC.
John Kavanagh sést hér á æfingu með Gunnari Nelson en þeir hafa æft stíft undanfarnar vikur fyrir komandi bardaga í UFC. Fréttablaðið/Valli
John Kavanagh er aðalþjálfari íþróttafélagsins Mjölnis. Hann hefur verið viðriðinn blandaðar bardagalistir um árabil og er afar hrifinn af landi og þjóð. Hann býst við miklu af Gunnari Nelson og segir framtíðina bjarta hjá íslenskum bardagaköppum.

Þetta verður mjög áhugaverður bardagi því Santiago er langreyndasti bardagamaðurinn sem Gunni hefur mætt. Ég held að Gunni eigi eftir að læra mikið á þessum bardaga, óháð því hvernig hann fer," segir John Kavanagh, aðalþjálfari bardagaíþróttaklúbbsins Mjölnis.

Gunnar Nelson mætir Jorge Santiago frá Brasilíu í öðrum bardaga sínum í UFC-keppninni á laugardaginn eftir viku. Santiago er án efa erfiðasti andstæðingurinn sem Gunnar hefur mætt til þessa enda margreyndur í íþróttinni.

„Santiago fékk svarta beltið í brasilísku jiu-jitsu áður en Gunni hafði heyrt af íþróttinni svo hann hefur verið viðloðandi greinina í mjög langan tíma. Santiago er mjög góður alhliða íþróttamaður, bæði í kick-boxinu og gólfglímunni. Það verður gaman að sjá Gunna mæta honum því hann er verðugur andstæðingur."

Afar reyndur

Gunnar átti upphaflega að mæta Justin „Fasthand" Edwards en hann dró sig úr keppni og Santiago hljóp í skarðið. „Ef þú berð Edwards og Santiago saman er þetta allt annar leikur. Santiago er miklu betri. Hann hefur barist í Evrópu, Japan, Ameríku og Brasilíu. Hann hefur mætt afar hæfileikaríkum mönnum sem eru mjög hátt skrifaðir í íþróttinni. Á ferli sínum hefur hann bara tapað fyrir mjög góðum og stórum millivigtarmönnum. Nú keppir hann hins vegar í veltivigt, sem er léttari flokkur, og ég held að hann hafi ekki tapað bardaga í þeirri vigt. Santiago er auk þess bara 32 ára og menn eru yfirleitt að toppa á þeim aldri."

Kavanagh segir erfitt að segja til um hvernig bardaginn eigi eftir að þróast, jafnvel þótt bæði Gunnar og Santiago séu báðir með svarta beltið í brasilísku jiu-jitsu. „Það er alltaf erfitt að segja til um það. Ég legg yfirleitt ekki upp með plan með strákunum mínum því þau eru fín þangað til þú ert sleginn og þá fýkur það út um gluggann. Við æfum frekar ólíkar aðstæður sem geta komið upp þannig að hvernig sem bardaginn þróast verður Gunni tilbúinn."

En heldur þú að Gunni vinni? „Að sjálfsögðu."

Ótrúleg þróun í MMA

John hefur æft blandaðar bardagalistir í ein átján ár eða um helming ævi sinnar. „Ég hafði alltaf áhuga á bardagaíþróttum og prófaði nokkrar en fann mig aldrei sérstaklega. Ég sá svo UFC í sjónvarpinu, þar sem léttir brasilískir bardagamenn létu íþróttina líta svo auðveldlega út, og varð strax hrifinn. Það sem meira er virtist enginn slasast illa því þetta voru kannski nokkur högg en svo náðu þeir uppgjafatökum og unnu. Þetta hreif mig strax. Ég held að ég hafi séð UFC-bardagann á föstudegi og strax daginn eftir vorum við félagarnir farnir að æfa íþróttina. Við vissum að vísu ekki hvað við vorum að gera og þannig var það fyrstu tvö árin. Það var enginn að kenna MMA eða brasilískt jiu-jitsu á þeim tíma svo okkur fór hægt fram. Nú geta menn fengið bestu mögulegu kennslu sem hægt er, til dæmis hér í Mjölni. Menn eru jafnvel að fá bláa beltið á nokkrum mánuðum nú en það tók mig einhver sex til sjö ár. Það er ótrúlegt að fylgjast með þróuninni. Ég verð að vísu að viðurkenna að ég er svolítið afbrýðisamur út í þá," segir hann og hlær.

Hrifinn af landi og þjóð

John hefur búið á Íslandi síðan í ágúst og er afar hrifinn af landi og þjóð. „Ég er mjög hrifinn af andrúmsloftinu hér í Mjölni, það er mjög svipað og í æfingasalnum heima í Dublin. Mjölnir er með eina stærstu æfingaaðstöðu fyrir blandaðar bardagalistir í heiminum. Ég hef farið víða um heim og heimsótt marga bardagaíþróttaklúbba en aðstaðan þar jafnast á engan hátt við þá sem Mjölnir býr yfir. Þeir sem koma hingað inn halda að svona líti allir bardagaíþróttaklúbbar út en svo er ekki. Bara anddyrið hér er stærra en húsnæðið sem flestir bardagaklúbbar sem ég hef komið í búa yfir. Andrúmsloftið og æfingaaðferðirnar hjá Mjölni eru líka betri en hjá langflestum klúbbum. Það ríkir mikil fjölskyldustemning hér, þetta er eins og að vera með fjölskyldunni þinni nema þú mátt kýla þá sem eru í henni," segir hann og hlær.

Hann segist ánægður með hugarfar Íslendinganna sem æfa blandaðar bardagalistir. „Þeir sem æfa hér líta á þetta sem lífsstíl – þeir æfa eða hugsa um íþróttina frá því að þeir vakna og þar til þeir fara að sofa. Sumir kalla þetta þráhyggju en ég held að fólkið elski bara það sem það er að gera. Þú þarft að leggja mikið á þig til að verða góður í íþróttinni og þú leggur ekki svona mikið á þig nema mikil ástríða liggi að baki."

Samstarf við Írland

John hefur fengið nokkra félaga sína frá Írlandi til æfinga í Mjölni en þar má meðal annars nefna Conor McGregor og Cathal Pendred. McGregor vann léttivigtarbelti Cage Warriors á gamlársdag og er nýbúinn að skrifa undir samning við UFC. Pendred undirbýr sig nú á fullu fyrir titilbardaga í Cage Warriors í mars.

„Ég reyni að fá tvo til þrjá bardagakappa, sem allir eru atvinnumenn, í heimsókn reglulega. Bæði þeir og Mjölnismenn hafa gott af því að breyta til og reyna sig með nýjum æfingafélögum."

Bardagakappar úr Mjölni hafa einnig heimsótt félag Johns í Dublin og vonast hann til að framhald verði á samstarfinu. „Íslendingar og Írar virðast líka eiga skap saman og það hefur alltaf verið auðvelt fyrir þá að aðlagast aðstæðum."

Bjart fram undan

Gunnar Nelson og Árni Ísaksson eru þekktustu íslensku bardagakapparnir en að sögn Johns munu fleiri eiga eftir að láta að sér kveða í náinni framtíð. „Það eru margir mjög góðir glímumenn hérna sem og áhugamenn í MMA. Á næstu árum munu þeir skapa sér nafn í þessum heimi. Bjarki Þór [Pálsson] mun berjast sama kvöld og Árni í Cage Contender í lok mánaðarins og ég er mjög spenntur yfir honum. Honum hefur farið mikið fram á síðustu mánuðum," segir John. „Það eru margir mjög efnilegir hér í Mjölni og ég bíð spenntur eftir því að sjá hvernig þeir eiga eftir að vaxa og öðlast reynslu."

Kostnaðarsöm íþrótt

En hvernig sérðu MMA og Mjölni þróast á Íslandi á næstu árum? „Eins og ég sagði eiga margir góðir bardagakappar eftir að koma fram á næstu árum. En þetta er svolítið öðruvísi hér en til dæmis á Írlandi. Þar eru MMA-bardagar allar helgar svo bardagakapparnir eru fljótir að verða sér úti um reynslu án mikils kostnaðar. Ef strákarnir hér ætla að ná sér í smá reynslu, til dæmis með áhugamannabardaga, fylgir því mikill kostnaður, flug, hótel og allt það. Ég held engu að síður að mjög góðir og hæfileikaríkir íslenskir bardagakappar eigi eftir að líta dagsins ljós á næstu árum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×