Fjallgöngukona fórst eftir fall í Esjuhlíðum 4. febrúar 2013 06:00 Svæðisstjórn björgunarsveitanna stýrði björgunaðgerðum í miðstöð sem sett var upp við rætur Esjunnar í gær. Fréttablaðið/Anton
Kona lést er hún hrapaði í hlíðum Esjunnar í gær. Konan var á ferð við Hátind ásamt um þrjátíu manna gönguhópi er hún féll og rann yfir tvö hundruð metra. Tilkynning um slysið barst klukkan 14.31 Þá var veður tekið að versna hratt og svo mikið að ekki reyndist unnt að senda þyrlu til aðstoðar konunni sem var efst í Grafardal vestan við Hátind. Afar seinlegt var fyrir um tuttugu þrautþjálfaða björgunarsveitarmenn að komast upp á slysstaðinn enda um ís og kletta að fara. Slæmt fjarskiptasamband var í fjallinu vegna óveðursins. Þegar björgunarmenn náðu til konunnar um klukkan fimm var hún látin. Hópurinn var á göngu við þekkta gönguleið við Hátind sem er rétt við hæsta tind Esjunnar. Stærsti hluti hópsins hélt niður af fjallinu en þrír göngumenn fóru á slysstaðinn sem er í um 620 metra hæð. Björgunarmenn aðstoðuðu þá við að komast niður af fjallinu og tók það um þrjár klukkustundir. Sá síðasti þeirra kom ekki niður á jafnsléttu fyrr en um klukkan átta í gærkvöld enda þurfti að síga hamra. Komið var með konuna niður upp úr klukkan hálfníu. ?„Svona fjöll á Íslandi á þessum árstíma eru alltaf erfið yfirferðar. Þetta eru því sem næst þverhníptir klettar,"? segir Jónas Guðmundsson hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu. Að sögn Jónasar voru björgunarsveitarmenn komnir að Esjurótum um klukkustund eftir að aðstoðar var óskað. Svæðisstjórn björgunarsveitanna stýrði aðgerðum úr flutningabíl með stjórnstöð sinni. Alls tóku um fimmtíu manns þátt í verkefninu. Ekki er hægt að greina frá nafni hinnar látnu að svo stöddu. Ekki var heldur gefið upp í gærkvöld um hvaða gönguhóp var að ræða. Auk þess að takast á við þetta erfiða verkefni í Esjunni voru björgunarsveitarmenn sendir til að aðstoða skíðafólk í Skálafelli. Þar skall skyndilega á brjálað veður og færð spilltist hratt. gar@frettabladid.is
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Fleiri fréttir Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Sjá meira