Íbúum fjölgar mest í Kópavogi og Garðabæ Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar 25. janúar 2013 07:00 Mest fjölgun íbúa varð í Kópavogi á síðasta ári miðað við heildarfjölda íbúa sveitarfélagsins. Samtals fjölgaði þeim um 474 íbúa sem samsvarar 1,52%. Mest fólksfækkun var í Skagafirði þar sem íbúunum fækkaði um 17 eða 0,42%.fréttablaðið/vilhelm
Íbúum búsettum á Íslandi fjölgaði um alls 2.010 á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2012. Íbúum í Reykjavík fjölgaði um 815 og íbúum í öðrum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins um samanlagt 1.015 á tímabilinu. Íbúum á landsbyggðinni fjölgaði um 180. Þetta leiðir nýuppfærð íbúaskrá Þjóðskrár í ljós en stofnunin gefur 1. desember ár hvert út lögbundna íbúaskrá fyrir sveitarfélög landsins. Liggur skráin meðal annars til grundvallar skiptingu fjármuna úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og þá miðast kosningaréttur íslenskra ríkisborgara sem hafa átt lögheimili erlendis við skrána. Íbúum fjölgaði í 41 af 75 sveitarfélögum landsins en fækkaði í 34. Hlutfallslega fjölgaði íbúum mest í Eyja- og Miklaholtshreppi á Vesturlandi eða um 18,18%. Þar búa nú 156 einstaklingar. Íbúum fækkaði hins vegar mest í Kjósarhreppi eða um 7,27%. Þar búa nú 204. Flóahreppur, Svalbarðsstrandarhreppur, Tálknafjarðarhreppur og Bolungarvík voru í hópi annarra sveitarfélaga þar sem íbúum fjölgaði hlutfallslega mikið. Íbúum fækkaði aftur á móti hlutfallslega mikið í Kjósarhreppi, Ásahreppi, Sandgerði, Breiðdalshreppi og Skorradalshreppi. Sé einungis litið á stærstu sveitarfélög landsins fjölgaði íbúum hlutfallslega mikið í Kópavogi og Garðabæ en fækkaði í Skagafirði og í Ísafjarðarbæ.
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Fleiri fréttir Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Sjá meira