"Stemmningin varð eins og í kirkjugarði" Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. júlí 2013 18:38 Ellert Hreinsson hefur farið á kostum með Breiðabliki í Evrópudeildinni. Mynd/Vilhelm „
Þetta var geggjað. Við erum enn í vímu og í góðum gír inni í klefa," segir Ellert Hreinsson hetja Breiðabliks í Evrópudeildinni.Ellert skoraði eina mark leiksins í 1-0 útisigri Blika gegn Sturm Graz í Austurríki í síðari leik liðanna í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í dag. Blikar unnu einvígið samanlagt 1-0 eftir markalaust jafntefli í fyrri leiknum. „Við höfðum allir fulla trú á þessu frá fyrstu mínútu. Ef hún hefði ekki verið til staðar hefðum við aldrei klárað þetta," segir Ellert. Blikar lágu til baka í leiknum en voru þó sjaldnast í nauðvörn. Færi heimamanna voru af skornum skammti. „Þjálfarateymið var búið var búið að kortleggja þeirra lið hægri vinstri. Við erum ekki búnir að fá á okkur mark í Evrópukeppninni og það er engin tilviljun," segir Ellert. Hann segir það hafa verið sérstaka tilfinningu að skora markið mikilvæga. „Það var skrýtið að spila fyrir framan tíu þúsund manns og skora svo mark. Þá varð stemmningin eins og í kirkjugarði á leikvanginum. Nema á varamannabekknum þar sem ég ég sá strákana hoppa upp og fagna. Þetta var frábært," segir Ellert. Blikar mæta liði Aktobe frá Kasakstan í 3. umferð keppninnar.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Breiðablik - FH | Meistararnir gegn buguðum silfurkonum ÍBV - Stjarnan | Geta tryggt sér bronsið Þróttur - Gri/Nja | Liðin sem léku um bikarinn Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sjá meira