Stjórnlagafrumvarpið afgreitt 26. janúar 2013 14:46 Frá fundi stjórnlagaráðs.
Sex af níu fulltrúum í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis greiddu atkvæði með því að stjórnlagafrumvarpið yrði afgreitt úr nefndinni. Valgerður Bjarnadóttir, formaður nefndarinnar, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu. Hún sagði fulltrúa Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hafa greitt atkvæði gegn tillögunni. Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar, samþykkti frumvarpið en skrifaði þó ekki undir nefndarálitið. „Nú verður frumvarpið lagt fyrir þingið. Það verður hægt að taka það á dagskrá eftir helgi," sagði Valgerður. Hún sagði þó alls óvíst hvenær málið yrði tekið fyrir hjá þingmönnum. Valgerður sagði nokkrar breytingar hafa verið gerðar á frumvarpinu í kjölfar umsagna og athugasemda sem gerðar hafa verið. Varðandi helstu breytingar sagði Valgerður: „Ég tel mjög merkilegt ákvæði um utanríkismál í 111. grein, um framsal ríkisvalds, sem er talsvert breytt frá því sem stjórnlagaráð lagði til. Þá hverfum við aftur til tillagna stjórnlagaráðs í 14,, 15. og 16. grein sem eru um upplýsingafrelsi," sagði Valgerður. Auk þess hafi orðinu „einkaréttur" í grein 34 um náttúruauðlindir verið breytt yfir í „einkaeigu" á nýjan leik. Þá hafi 39. grein um alþingiskosningar verið breytt að því leyti að löggjafanum er falið að útfæra kosningalögin. Hins vegar séu helstu grundvallaratriði sem lögð voru til enn á sínum stað.Frumvarp stjórnlagaráðs má lesa hér.
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Vill afnema sektir við vændiskaupum Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent Fleiri fréttir NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun Sjá meira