Steingrímur lítur í baksýnisspegilinn: Hefði örugglega mátt gera margt betur Boði Logason skrifar 29. janúar 2013 14:24 Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegamálaráðherra og formaður VG. Mynd/Vilhelm „
Það eru ein mistök sem eru stærst í þessu máli og þau eru að leyfa þessu máli að verða til," sagði Steingrímur J. Sigfússon í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag um Icesave-málið. Steingrímur sagði að Icesave-reikningarnir hafi búið til stórhættulega stöðu fyrir Ísland, sem var alveg fram á gærdaginn ekki ljóst hvernig landið kæmist frá. „Sú staðreynd að íslenskum banka var leyft að safna þessum óhemjuinnistæðum í útibúum á erlendri grund, og það átti að heita tryggt að íslenska innistæðutryggingakerfinu, bjó til stórhættulega stöðu fyrir landið. Það má segja að það hafi ofvöxtur bankana í heild sinni gert. Þegar við á litla Íslandi vorum allt í einu með bankakerfi með mikilli alþjóðlegri starfsemi sem var 7 sinnum stærri en landsframleiðslan og 10 sinnum stærri en landsframleiðan þegar gengið féll," sagði Steingrímur. „Örugglega hefði mátt gera margt betur ef maður lítur í baksýnisspegilinn og ég er ekki að skorast undan því að líta á minn hlut í þeim efnum, það er alveg augljóst mál. [...] Ég sá það ekki fyrir að þetta mál myndi verða að þeim ósköpum í íslenskum stjórnmálum sem raun bar vitni," sagði hann. Það verði að skoða stöðuna eins og hún var uppi á hverjum tíma, og ef menn ætluðu að rifja upp málið þyrfti að byrja sumarið 2008. Þá upplýsti hann um hver staðan væri nú á Icesave-samningunum sem gerðir voru á sínum tíma. Fyrsti samningurinn, Svavars-samningurinn svokallaði, stæði nú í 137 milljörðum króna á núvirði með 6 % núvirðingarstöðul. Icesave II stæði í 94 milljörðum króna og síðasti samningurinn, sem Lee Bucheit gerði fyrir hönd Íslands, stæði í 63 milljörðum króna.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Sjá meira