Fátækt kallar á aðgerðir Bjarni Gíslason skrifar 28. mars 2013 06:00 Hjálparstarf kirkjunnar vill vissulega draga fram erfiða stöðu fátækra á Íslandi og hvetja fólk til að bregðast við og taka þátt í páskasöfnun til eflingar innanlandsstarfi sem nær til alls landsins. Valgreiðsla bíður þín í heimabankanum og þú getur gefið á framlag.is. En við viljum ekki síður benda á hæfileika og getu þeirra sem hafa vegna fátæktar ýst út á jaðar samfélagsins, hafa einangrast og fá ekki að taka þátt og leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Framlag sem við höfum alls ekki efni á að vera án. Ónýtt geta, ónýttir hæfileikar, ónýtt framleiðni sem við þurfum á að halda. Hjálparstarfið þrýstir á hið opinbera að beita í frekari mæli einstaklingsmiðuðum lausnum og hlúa betur að þeim sem hafa lent milli skips og bryggju í kerfinu. Með stofnun Íslandsdeildar EAPN (European Anti Poverty Network), ásamt öðrum samtökum, vill Hjálparstarfið vinna gegn fátækt, stuðla að opinni umræðu og þrýsta á yfirvöld um lausnir. Það borgar sig nefnilega, mannlega og efnahagslega, að ná öllum inn í hlýjuna, að virkja alla til þátttöku. Um það snýst starf Hjálparstarfsins á Íslandi í samstarfi við fjölda aðila. Markmiðið er að rjúfa vítahring fátæktar, horfa á getu og hæfni hvers og eins og opna möguleika til virkrar þátttöku í samfélaginu. Það gerist með efnislegri aðstoð, til dæmis inneignarkortum í matvöruverslunum, lyfjastuðningi og stuðningi vegna kostnaðar við framhaldsskólanám, en um leið með almennri ráðgjöf, fjármálaráðgjöf, sjálfstyrkingarnámskeiðum og lífsleikni-, matreiðslu- og saumanámskeiðum. Markmiðið er sjálfstæði og betri lífsafkoma. Með þeim sem eru í erfiðri stöðu er mikill kraftur og geta sem þarf að virkja og finna farveg fyrir. Þegar því er náð er gangan hafin, í eigin krafti sem fullgildur þjóðfélagsþegn sem fær að láta ljós sitt skína. Ljós sem hafði af ýmsum ástæðum dofnað og jafnvel slokknað. En þannig á það ekki að vera. Fátækt kallar á aðgerðir. Hvað ætlar þú að gera? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun ADHD og hvatvísi Hjördís María Karlsdóttir Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun Getum við raunverulega skipulagt borgina? Darío Nunez Salazar Skoðun Fjárfesting í hvíld skilar sér í meiri framleiðni Ellen Calmon Skoðun Ábyrgt fólk segir satt og rétt frá Gunnsteinn R. Ómarsson Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Jafnrétti í litlu samfélagi: Áskoranir og ábyrgð Guðný Sara Birgisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Mannréttindi í hættu í yfirfullum fangelsum Tinna Eyberg Örlygsdóttir skrifar Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Stóra sósíalíska skinkumálið Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir skrifar Skoðun ADHD og hvatvísi Hjördís María Karlsdóttir skrifar Skoðun Getum við raunverulega skipulagt borgina? Darío Nunez Salazar skrifar Skoðun Ábyrgt fólk segir satt og rétt frá Gunnsteinn R. Ómarsson skrifar Skoðun Jafnrétti í litlu samfélagi: Áskoranir og ábyrgð Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun Fjárfesting í hvíld skilar sér í meiri framleiðni Ellen Calmon skrifar Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Við stöndum vörð um Múlaþing Jónína Brynjólfsdóttir,Eiður Ragnarsson skrifar Skoðun Viðsnúningur í rekstri, hver borgar? Stefán Þór Eysteinsson,Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir skrifar Skoðun Fagmennska, forgangsröðun og framtíð þróunarsamvinnu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti gagnast ekki atvinnulífinu Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Það sem enginn segir þér um að flytja til annars lands Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Hvers vegna og hvernig háskólanám? Hallur Þór Sigurðarson skrifar Skoðun Frá þekkingu til verðmæta – hvar slitna tengslin? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ilmurinn er svo lokkandi Einar Helgason skrifar Skoðun Við ræktum arfa og vonumst eftir rósum Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Lækkum leikskólagjöld og tökum upp 100% syskinaafslátt Tinna Berg Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Í þágu heimilanna… utan ESB Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Chardonnay á Sólvallagötu Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg en ómissandi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum! María Pálsdóttir skrifar Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar Skoðun Meira sund í Kópavogi Jónas Már Torfason skrifar Sjá meira
Hjálparstarf kirkjunnar vill vissulega draga fram erfiða stöðu fátækra á Íslandi og hvetja fólk til að bregðast við og taka þátt í páskasöfnun til eflingar innanlandsstarfi sem nær til alls landsins. Valgreiðsla bíður þín í heimabankanum og þú getur gefið á framlag.is. En við viljum ekki síður benda á hæfileika og getu þeirra sem hafa vegna fátæktar ýst út á jaðar samfélagsins, hafa einangrast og fá ekki að taka þátt og leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Framlag sem við höfum alls ekki efni á að vera án. Ónýtt geta, ónýttir hæfileikar, ónýtt framleiðni sem við þurfum á að halda. Hjálparstarfið þrýstir á hið opinbera að beita í frekari mæli einstaklingsmiðuðum lausnum og hlúa betur að þeim sem hafa lent milli skips og bryggju í kerfinu. Með stofnun Íslandsdeildar EAPN (European Anti Poverty Network), ásamt öðrum samtökum, vill Hjálparstarfið vinna gegn fátækt, stuðla að opinni umræðu og þrýsta á yfirvöld um lausnir. Það borgar sig nefnilega, mannlega og efnahagslega, að ná öllum inn í hlýjuna, að virkja alla til þátttöku. Um það snýst starf Hjálparstarfsins á Íslandi í samstarfi við fjölda aðila. Markmiðið er að rjúfa vítahring fátæktar, horfa á getu og hæfni hvers og eins og opna möguleika til virkrar þátttöku í samfélaginu. Það gerist með efnislegri aðstoð, til dæmis inneignarkortum í matvöruverslunum, lyfjastuðningi og stuðningi vegna kostnaðar við framhaldsskólanám, en um leið með almennri ráðgjöf, fjármálaráðgjöf, sjálfstyrkingarnámskeiðum og lífsleikni-, matreiðslu- og saumanámskeiðum. Markmiðið er sjálfstæði og betri lífsafkoma. Með þeim sem eru í erfiðri stöðu er mikill kraftur og geta sem þarf að virkja og finna farveg fyrir. Þegar því er náð er gangan hafin, í eigin krafti sem fullgildur þjóðfélagsþegn sem fær að láta ljós sitt skína. Ljós sem hafði af ýmsum ástæðum dofnað og jafnvel slokknað. En þannig á það ekki að vera. Fátækt kallar á aðgerðir. Hvað ætlar þú að gera?
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar
Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson skrifar
Skoðun Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir skrifar
Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar
Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir Skoðun