Innlent

Einstæðir foreldrar í launalaust leyfi

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Fimm vikna lokun leikskóla í Hafnarfirði auk sex daga lokunar yfir árið vegna skipulagsdaga fellur ekki í kramið hjá foreldrum.
Fimm vikna lokun leikskóla í Hafnarfirði auk sex daga lokunar yfir árið vegna skipulagsdaga fellur ekki í kramið hjá foreldrum. Fréttablaðið/Vilhelm

Foreldrar í Hafnarfirði segja fimm vikna sumarlokun leikskóla lengri en orlofsrétt flestra foreldra og því algerlega óásættanlega. Einstæðir foreldrar þurfi sumir að taka launalaust leyfi til að mæta leikskólafríum. Málið sé bænum til lítils sóma.

„Lokanir leikskóla í Hafnarfirði eru lengri en orlofsréttur flestra foreldra og er það algerlega óásættanlegt fyrir barnafjölskyldur í bænum,“ segir foreldraráð leikskóla Hafnarfjarðar um fimm vikna sumarlokun leikskólum bæjarins.

Í erindi foreldraráðsins til bæjaryfirvalda er rifjað upp að sumarlokanir leikskóla Hafnarfjarðar voru lengdar úr fjórum vikum í fimm fyrir árin 2012 og 2013.

„Foreldraráð leikskóla Hafnarfjarðar hefur alltaf mótmælt harðlega þessari fimm vikna sumarlokun því svo löng lokun veldur flestum barna fjölskyldum Í Hafnarfirði miklum óþægindum. Fáir hafa kost á því að taka fimm vikna sumarfrí og foreldrar þurfa að auki að eiga inni frídaga fyrir skipulagsdögum leikskóla,“ segir foreldraráðið.

Þá segir að einstæðir foreldrar þurfi jafnvel að taka launalaust leyfi fyrir hluta af lokunun leikskóla þar sem sjái oft á tíðum einir um barnið. Í fjölskyldustefnu Hafnarfjarðar segi að skilyrði til uppeldis barna í bænum séu ákjósanleg. Fimm vikna sumarlokanir leikskóla ásamt sex skipulagsdögum stangist á við þessa fjölskyldustefnu bæjarins.

Ennfremur segir foreldraráðið að í Reykjavík, Kópavogi, Reykjanesbæ, Mosfellsbæ og Akureyri séu leikskólarnir lokaðir í fjórar vikur. Í Garðabæ sé engin sumarlokun.

„Telur foreldraráðið það Hafnarfjarðarbæ ekki til sóma að vera með lengstu sumarlokanir leikskóla af stóru sveitarfélögum,“ segir foreldraráðið og bendir á að nú séu skipulagsdagar leikskóla í Hafnarfirði sex á ári. Það komi sér mjög illa fyrir foreldra og mikilvægt sé að fækka þessum dögum auk þess að stytta sumarlokanirnar.

Erindi foreldranna var tekið fyrir í fræðsluráði Hafnarfjarðar sem svarar því til að sumarlokun verði stytt eftir þetta skólaár og skipulagsdögum fækkað um einn þar næsta skólaár.

Ath: Ekki mun vera rétt sem kemur fram hér að ofan að leikskólar í Mosfellsbæ loki fjórar vikur í sumar að sögn Gunnhildar Sæmundsdóttur skólafulltrúa þar.

"Hið rétta er að foreldrar velja hvenær þeir taka sumarleyfi fyrir barn sitt og leikskólarnir eru opnir allt sumarið þ.e. ef eitthvert barn er skráð í vistun. Leikskólarnir, sem eru sjö fara hins vegar í samstarf og  vinna mikið saman yfir hásumarið þegar flest börnin eru í fríi sem er í júlímánuði en þá eru að öllu jöfnu yfir 90 prósent barnanna í sumarleyfi," segir Gunnhildur í ábendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×