Sara Björk skoraði í stórsigri LdB Malmö Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. ágúst 2013 18:38 Sara Björk Gunnarsdóttir. Mynd/Daníel
Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði eitt marka LdB Malmö í 5-0 stórsigri liðsins á útivelli á móti Kopparbergs/Göteborg í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. LdB Malmö er á miklu skriði eftir EM-fríið og hefur unnið alla þrjá leiki sína með markatölunni 12-2. Sara Björk Gunnarsdóttir og Þóra Björg Helgadóttir voru að venju í byrjunarliði LdB Malmö og léku báðar allan leikinn. LdB Malmö náði þriggja stiga forskoti á Tyresö á toppnum með þessum sigri auk þess sem að liðið náði að bæta markatölu sína talsvert. Tyresö á leik inni á móti Örebro á miðvikudaginn. Malmö-liðið skoraði fimm mörk framhjá sænska landsliðsmarkverðunum K. Hammarström en Kopparbergs/Göteborg er í 3. sæti deildarinnar og kemur því þetta stóra tap mjög á óvart. Þýski Evrópumeistarinn Anja Mittag skoraði tvö fyrstu mörkin og lagði síðan upp það þriðja fyrir Manon Melis. Therese Sjögran skoraði fjórða markið og þannig var staðan í hálfleik. Sara Björk skoraði fimmta markið á 70. mínútu eftir sendingu frá varamanninum Katrine Veje. Það reyndist vera síðasta mark leiksins.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Sjá meira