Foreldrar hæstánægðir með frístundaheimilin 10. apríl 2013 22:53 Mynd úr safni.
Ný könnun meðal foreldra barna á frístundaheimilum borgarinnar sýnir að mikill meirihluti þeirra er ánægður með þá þjónustu sem þau veita. Níu af hverjum tíu foreldrum eru ánægðir með frístundaheimilið og telja að barninu þeirra líði þar vel. Ánægja með þjónustu og viðfangsefni frístundaheimilanna hefur aukist milli ára. Markmið könnunarinnar, sem náði til á fjórða þúsund foreldra barna í 1. – 4. bekk, var að skoða viðhorf þeirra til frístundaheimila, daglegra viðfangsefna frístundaheimilanna, áherslur í faglegu starfi og upplýsingagjöf. Þetta er í annað sinn sem slík könnun er gerð, en eitt af meginmarkmiðum skóla- og frístundasviðs er að nýta kannanir og mat til að styðja við skóla- og frístundastarf. Í ljós kom 94 prósent foreldra telja barninu almennt líða vel á frístundaheimilinu (88 prósent árið 2011) og 89 prósent töldu dvölina þar hafa jákvæð félagsleg áhrif á barnið (83 prósent árið 2011). Rösklega 82 prósent foreldra töldu viðfangsefni barnsins á frístundaheimilinu áhugaverð (79 prósent árið 2011) og 87 prósent töldu vel ganga að samræma dvöl á frístundaheimili við annað skipulagt frístundastarf. Þá mældist mikil ánægja með samskipti við starfsfólk frístundaheimilanna eða 90 prósent samanborið við 82 prósent árið 2011. Viðhorfskönnun sem þessi er mikilvægt umbótatæki og vinnur hvert frístundaheimili úr niðurstöðunum til að styrkja þá þætti sem koma veikir út. Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs, segir niðurstöður könnunarinnar mjög hvetjandi fyrir starfsfólk frístundaheimila og að ástæða sé til að óska þeim til hamingju með þær; „Það er mikil gróska í frístundastarfinu og þróunarverkefni blómstra um alla borg. Sífellt fleiri sækja í framhaldsnám í tómstunda- og félagsmálafræði og okkur verður betur og betur ljóst hvað hugmyndafræði frístundastarfsins er mikilvæg í lærdómsumhverfi barna. Ánægja foreldra með frístundaheimilin segir okkur að við séum á réttri leið, og hvetur okkur til þess að halda áfram að byggja upp bestu frístundaheimili á landinu.“ Viðhorf foreldra barna á frístundaheimilum Reykjavíkur eru könnuð reglulega og hefur ánægja þeirra með þjónustu og viðfangsefni aukist jafnt og þétt milli ára.
Mest lesið Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Fleiri fréttir Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Sjá meira