“Það má kalla það dómgreindarskort“ 28. janúar 2013 22:30
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra, sagði á Stöð 2 í kvöld að sín mistök í Icesave-málinu fælust í því að hafa vanmetið pólitískt flækjustig Icesave-málsins. „Ef ég á að játa einhver augljós mistök, þá sá ég það ekki fyrir að málið, eins og það er vaxið, vegna aðildar margra að því fyrr, myndi snúa upp á sig í pólitíkinni í þessi ósköp sem það gerði. Það má kalla það dómgreindarskort, " sagði Steingrímur. Steingrímur var meðal gesta í beinni útsendingu í Íslandi í dag í Stöð 2 í kvöld ásamt Unni Brá Konráðsdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins og Reimari Péturssyni, hrl. og meðlimi í málflutningsteymi Íslands, þar sem farið var yfir niðurstöðu EFTA-dómstólsins í Icesave-málinu, en Unnur Brá er meðal fjögurra þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem lagðist gegn samþykkt Icesave-samninga Buchheits. Dómstóllinn hafnaði öllum kröfum ESA í málinu og dæmdi stofnunina jafnframt til að greiða málskostnað Íslands. Þá þarf Evrópusambandið að bera sinn eigin málskostnað en sambandið stefndi sér inn í málið til að gæta hagsmuna sinna. Steingrímur var ekki tilbúinn að fallast á að það hafi verið mistök af sinni hálfu að treysta pólítískum læriföður sínum, Svavari Gestssyni, sem enga reynslu hafði af alþjóðlegri samningagerð þegar kröfur af þessu tagi eru annars vegar, til að gera samninga sem byggðir voru á veikum lagalegum grunni árið 2009. Sjá má viðtal við þau Steingrím J., Unni Brá og Reimar hér. eða með því að smella á myndskeið með frétt hér ofar.
Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Erlent Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Innlent Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Innlent Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Innlent Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Erlent Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent Fleiri fréttir Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Loðna fundist á stóru svæði Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Sjá meira