Hafnar gagnrýni Náttúrufræðistofnunar Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 9. júlí 2013 09:00 Björn B. Jónsson segir það frábært að landeigandi hafi bæði valið að endurheimta votlendi á jörð sinni og rækta skóg. „
Skógræktin ógnar tjörninni ekki á nokkurn hátt,“ segir Björn Jónsson, framkvæmdastjóri Suðurlandsskóga, en skógrækt á hans vegum var harðlega gagnrýnd af fulltrúa Náttúrufræðistofnunar í Fréttablaðinu og á Vísi á laugardag. Skógræktin er í grennd við dýrmætt votlendi, Dagmálatjörn í Biskupstungum. Var hún endurheimt í tilraunaverkefni Votlendisnefndar, en hún hafði það hlutverk að endurheimta mýrlendi sem þurrkað hafði verið upp. Nýlega kom í ljós að eitrað hafði verið fyrir kjarr- og mýrlendisgróðri á stóru svæði austan tjarnarinnar og sitkagreni plantað í landið. Við þetta var Náttúrufræðistofnun afar ósátt og talar um hernað gegn landinu. Þessu hafnar Björn Jónsson og útskýrir að skógræktin sem um ræðir sé ekki á votlendissvæðinu sjálfu í kring um tjörnina. „Skógrækt er ekki stunduð í óframræstu mýrlendi. Það er ekki hægt, ræturnar myndu drukkna,“ segir Björn. „Gróðurfar við tjörnina er votlendisgróðurfar sem getur aldrei orðið þar sem skógræktin er,“ segir hann „að sjálfsögðu ekki, þar sem þetta er ekki votlendi. Við erum að fást við gras.“ Fullyrðingu þá um að eitrað hafi verið fyrir mýrlendisgróðri segir hann því ekki rétta. „Suðurlandsskógar nota graseyðingarlyf eingöngu í undantekningartilfellum þar sem grasvöxtur er talinn ógna lífi skógarplantna og kostnaðarsöm skógrækt er í húfi.“ Honum þykir einnig undarlegt að Náttúrufræðistofnun gagnrýni notkun Roundup þar sem að stofnunin hefur verið þátttakandi í að leyfa notkun á þessu lyfi um land allt, jafnvel á mjög viðkvæmum stöðum á hálendi Íslands. Hann bendir á að val á landi til skógræktar fari fram með öðrum hætti en viðmælandi í fréttinni gaf til kynna. „Það var gefið í skyn að starfsmenn Suðurlandsskóga veldu besta landsvæðið undir skógrækt. Landeigendur ákveða sjálfir hvaða hluta jarða sinna þeir taka undir skógrækt og skógfræðingar kortleggja það síðan og gefa ráð um ræktun á því svæði sem bóndinn hefur valið. Nánast í öllum tilfellum tökum við ekki allt svæðið undir skógrækt þar sem að við erum fagfólk og vitum að skógar passa alls ekkert alls staðar,“ segir Björn og áréttar að málið snúist að nokkru leyti um eignarrétt landeiganda. „Ég legg áherslu á að farið var út í að endurheimta votlendi á þessari tilteknu jörð og að vel hafi verið staðið að því.“ Það sé hins vegar þannig að þegar menn fara út í slíka aðgerð þá sé landeigandi ekki að setja alla jörðina undir. „Mér finnst Náttúrufræðistofnun láta eins og hún eigi jörðina.“ Að hans mati er landeigandinn á svæðinu sem um ræðir að gera vel þar sem að hann ákvað bæði að ráðast í að endurheimta votlendi og að taka hluta undir skógrækt.
Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Sjá meira