"Þetta er bara froða, þessar umræður" Jóhannes Stefánsson skrifar 9. júlí 2013 21:36 Jón Steinar Gunnlaugsson segir að innheimta veiðileyfagjalds sé skattur í skilningi 40. gr. stjórnarskrárinnar
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi Hæstaréttardómari, segir ljóst af umræðu um veiðileyfagjöld að ákveðins misskilnings gæti um það hvað skattur sé. „Ég held að það sé ljóst að það er ekki hægt að innheimta veiðigjald nema það sé lagaheimild til þess að gera það. Það byggist á 40. grein stjórnarskrárninnar þar sem kveðið er á um það að engan skatt megi á leggja nema samkvæmt lagaheimild. Í þeim skilningi er þetta bara skattur," segir Jón. Eins og kom fram í fréttum Vísis fyrr í dag hafa bæði Guðmundur Steingrímsson og Árni Páll Árnason haldið því fram að veiðigjaldið sé ekki skattur. Guðmundur segir svo ekki vera í ljósi þess að veiðigjaldið sé „gjald fyrir afnot af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar." Árni Páll segir veiðigjaldið vera „sérleyfi til að nýta sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar og afgjald fyrir það er ekki skattur.“Enga lagaheimild þyrfti til innheimtunnar ef ekki væri um skatt að ræða Jón gefur lítið fyrir þessar skýringar og segir mjög frjálslega farið með skilgreiningar á því hvað sé skattur. „Þetta er bara einhver froða, þessar umræður. Er þá verið að meina að það sé verið að innheimta gjaldið án lagaheimildar? Það tel ég að sé rangt. Það kemur ekki til mála að það sé hægt." Hann segir að ef rétt væri að ekki væri um skatt að ræða þá væri einsýnt að ekki þyrfti sérstök lög þyrfti til að innheimta veiðileyfagjald. „Ég veit ekki hvort að menn halda því fram að það sé hægt að gera það vegna þess að þetta sé einhver útleiga á eignum ríkisins eða eitthvað slíkt. Ef þeir eru að halda því fram þá er það bara misskilningur. Það mætti leigja út húsið sem hýsir Stjórnarráðið, til dæmis, og taka leigugjald fyrir það. En það má ekki með fiskveiðiréttinn. Það verður að minnsta kosti að hafa lagaheimildir til að mega leggja það gjald á. Þetta er nú eiginlega bara svarið við þessu. Ef menn halda það að vegna þess að þeir telja að þjóðin eigi auðlindina eins og komist er að orði, að þar með geti bara fyrirsvarsmenn ríkisins tekið að selja aðgang að auðlindinni án þess að það teljist vera skattur í skilningi 40. gr. stjórnarskrárinnar, þá er það bara misskilningur," bætir hann svo við.Veiðigjald álitið skattur í lögum um veiðigjaldÍ frumvarpi til laga nr. 74/2012 um veiðigjöld segir meðal annars: „Meginmarkmið með skattlagningu í sjávarútvegi eru þau að tryggja það að rentan af fiskveiðiauðlindinni skili sér til þjóðarinnar." Þá segir einnig í Úlfljóti, 1. tbl. 2006 í grein eftir Sigurð Líndal lagaprófessor: „Hér verður að hafa í huga að með orðinu skattur er tekið mið af viðtekinni skilgreiningu hugtaksins, þannig að það nær til opinberra gjalda sem bera einkenni skatta, þótt önnur orð séu notuð, svo sem útsvar, sóknargjöld, tollar eða veiðigjald."
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Sjá meira