Innlent

Björgunarmenn komnir niður með konuna

Um fimmtíu manns tóku þátt í aðgerðinni.
Um fimmtíu manns tóku þátt í aðgerðinni. Mynd/Vilhelm
Búið er að flytja göngukonuna sem slasaðist í Esju fyrr í dag í sjúkrabíl en fjallamenn björgunarsveitanna komu niður að vegi rétt í þessu.

Aðgerðin var nokkuð umfangsmikil þar sem aðstæður voru mjög erfiðar og veður vont en alls tóku um fimmtíu manns þátt frá slökkviliði og björgunarsveitum.

Samkvæmt upplýsingum frá fulltrúa slökkviliðs hrapaði konan í fjallinu suður undir Hábungu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×