Slæm hugmynd að breyta lífeyriskerfinu 5. mars 2013 18:11 „
Ég held að það sé ekki góð hugmynd," segir forseti ASÍ um hugmyndir um að lífeyrir ætti að fara í gegnum almannatryggingakerfið í stað núverandi kerfis. Gylfi Þór Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sagði í samtali við Reykjavík Síðdegis í dag að nýjar kynslóðir manna hér á landi væru fámennari en þær sem eru að eldast. „Það er ekki fyrr en nú á allra seinustu árum að það eru jafnfjölmennar kynslóðir að fæðast á Íslandi," segir Gylfi. Hann bendir á að hans kynslóð fari á eftirlaun í kringum árið 2025. Langt sé í að þær kynslóðir sem nú eru að fæðast taki við byrðinni. „Í dag er það um það bil þannig að það eru sex einstaklingar á vinnumarkaði fyrir hvern lífeyrisþega sem er á eftirlaunum. Árið 2030 mun þetta hlutfall vera þannig að aðeins þrír á vinnumarkaði verða fyrir hvern lífeyrisþega," segir Gylfi. „Það gefur auga leið að við getum ekki skattpínt þá einstaklinga sem verða á vinnumarkaði árið 2030 til þess að standa undir þeim lífeyri. Það sáu forverar mínir og okkar í kringum 1970 og fóru þar af leiðandi að búa til kerfi sem byggir á því að hver kynslóð sé sjálfbær til sinna eftirlauna og líka vegna sinnar þjónustu." Hægt er að hlusta á viðtalið við Gylfa í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Fleiri fréttir „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Sjá meira