Innlent

Gistinóttum fjölgar mikið

Svavar Hávarðsson skrifar
Allt bendir til þess að ferðamenn sæki hingað að vetrarlagi í stórauknum mæli.
Allt bendir til þess að ferðamenn sæki hingað að vetrarlagi í stórauknum mæli. fréttablaðið/valli
Gistinætur á hótelum í janúar voru 90.300 og fjölgaði um 25% frá janúar í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Gistinóttum erlendra gesta fjölgaði um 28% en gistinóttum Íslendinga um 13%.

Á höfuðborgarsvæðinu voru 73.600 gistinætur og nam fjölgunin um 23%. Á Vesturlandi og Vestfjörðum voru þær 2.100 nú en 900 í fyrra. Á Norðurlandi voru gistinæturnar 3.800 og fjölgaði um 55% en á Austurlandi voru þær 1.300 og fjölgaði um 58%. Á Suðurnesjum voru gistinæturnar um 4.400, sem er 25% aukning. Á Suðurlandi voru gistinætur tæplega 5.200, sem er sambærilegt og í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×