„Móse var 120 ára þegar hann dó“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 12. júní 2013 15:14 Snorri segir aldur manna á tímum Biblíunnar hafa verið mun hærri en hann er í dag. samsett mynd
Snorri Óskarsson kenndur við Betel gagnrýnir fréttaflutning af andláti Jiroemon Kimura sem sagður er elsti karlmaður allra tíma. „Þetta er nú ofsagt að 116 ára maður sé elsti karl allra tíma. Móse var 120 ára þegar hann dó. Jósúa eftirmaður hans sömuleiðis 120 ára,“ skrifar Snorri á bloggsíðu sína og bætir því við að ef farið sé enn framar í mannkynssögunni sé sagt að Adam hafi verið 930 ára þegar hann dó. „Aldurinn var í þá daga mun hærri en við þekkjum í dag,“ segir Snorri í samtali við Vísi, og viðurkennir reyndar að hafa sleppt Abraham í upptalningu sinni, sem sagður er hafa dáið 134 ára. „Svo kemur þessi merkilegi kafli með aldurinn frá Adam til Metúsalem, eða fram að Nóaflóði, þá er aldur manna í hundruðum ára. Það gæti alveg eins bent til þess að aldur allra lifandi dýra hafi verið miklu hærri þá og að það sé skýringin á risaeðlunum, að þær hafi orðið svona fjörgamlar. Sama gildir um risaskjaldbökurnar.“ Snorri telur þó að menn sem nái 930 ára aldri séu áfram í svipaðri stærð og aðrir menn. „Við mennirnir verðum aldrei neitt voðalega stórir því við erum ekki með svo mikið brjósk. En þessi dýr eins og risaeðlurnar, eðlurnar eru þannig gerðar að þær vaxa á meðan þær lifa. Ég held að Adam hafi bara verið í eðlilegri stærð, svona 1.80,“ segir Snorri og hlær. Aðspurður hvort ekki séu líkur á að himinháan aldur þeirra Adams og félaga megi skýra með ónákvæmum mælingum þess tíma segir Snorri svo ekki vera. „Ég held að sólarhringur þess tíma hafi verið 24 stundir alveg eins og í dag. Það gæti verið skekkja í árinu en það kom alltaf ákveðin leiðrétting fram á vissum tímum. Þeir voru strax byrjaðir að rannsaka þetta.“ Snorri telur að skýra megi stærð risaeðlanna með því að þær hafi orðið fjörgamlar.mynd/getty Aldur styttur vegna grimmdar Snorri segir Guð hafa stytt aldur manna vegna þess ranglætis sem maðurinn varð uppvís að, og þess vegna verði elsta mannfólkið ekki eldra en um það bil 120 ára. „Það var vegna illskunnar og grimmdarinnar og það kemur fram í Biblíunni. Að aldurinn verði ekki meiri en 120 ár, og eftir Nóaflóðið virðist það alveg passa. Menn eru ekki að ná mikið hærri aldri en það.“ Snorri segist vita að lífslíkur manna séu sífellt að aukast en að líklega verði fólk ekki eldra en 150 ára þegar fram í sækir. „Annars er þetta von og ágiskun manna. Ég nú á alveg eftir að sjá þetta gerast. En svo er eitt sem mun hafa áhrif á meðaltalið og það mun hækka aldur manna. Ef þetta er rétt sem við kristnir menn trúum, að Jesús muni koma aftur, þá mun hann binda dauðann og stoppa hann, og þá mun aldur manna verða eins og aldur trjánna.“
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira