Las ræðu um stjórnarskrána af Facebook í ræðustól 7. mars 2013 10:52 Birgitta Jónsdóttir
Þingmaður Hreyfingarinnar, Birgitta Jónsdóttir, las úr síma sínum stöðufærslu af Facebook-síðu sinni í ræðustól á Alþingi undir liðnum störf Alþingis, þar sem hún gagnrýndi stöðu stjórnarskrármálsins harkalega. Í ræðunni sagði hún meðal annars að málið hefði verið sett í „tætara gleymskunnar". Birgitta segir ferlið, sem stjórnarskráin er komin í, sé skammarlegt og það sé aðeins eitt orð yfir það, sem er uppgjöf, að hennar mati. Formaður Samfylkingarinnar lagði fram á Alþingi í gær ásamt Katrínu Jakobsdóttur formanni VG og Guðmundi Steingrímssyni formanni Bjartrar framtíðar frumvarp til breytingar á stjórnarskrá sem heimilar stjórnarskrárbreytingar á næsta kjörtímabili og tillögu til þingsályktunar um að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar á grundvelli tillagna stjórnlagaráðs verði lokið á 70 ára afmæli lýðveldisins árið 2014. Þór Saari, sem einnig er í Hreyfingunni, hefur vegna þessa lagt fram vantrauststillögu sem verður líklega ekki tekin fyrir fyrr en á morgun. Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, var harðorður í garð Þórs í ræðu sinni í dag. Þar bað hann Þór um að stíga varlega til jarðar, og sagði það engum öðrum en honum að kenna að stjórnarskrármálið dytti niður dautt, því það væru örlög málsins að hans mati ef tillaga Þórs verður samþykkt. Hægt er að lesa ræðu Birgittu á Facebook-síðu þingmannsins hér.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira