Íslenski boltinn

Doninger á leið til Ástralíu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Stefán
Mark Doninger, fyrrum leikmaður ÍA og Stjörnunnar, hefur samið við neðrideildarlið í Ástralíu. Þetta tilkynnti hann á Facebook-síðu sinni í dag.

Doninger kom hingað til lands fyrir tímabilið 2011 og skoraði þá níu mörk í 22 leikjum fyrir ÍA, sem lék þá í 1. deildinni.

Doninger fór svo frá ÍA til Stjörnunnar um mitt tímabilið 2012 en fékk ekki nýjan samning hér á landi að því loknu.

Það gekk á ýmsu hjá Doninger hér á landi en hann fékk tvo dóma fyrir líkamsárásir á sínum tíma. Í maí síðastliðnum þyngdi hæstiréttur svo dóm yfir honum en hann hafði fengið 45 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm í héraði. Hæstiréttur dæmdi hann í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×