Fordæmir matvælaframleiðendur Ingveldur Geirsdóttir skrifar 4. mars 2013 18:58
Formaður Bændasamtaka Íslands segir að þegar matvælaframleiðendur svindli í framleiðslu sinni séu þeir að svíkja tvo hópa, bændur og neytendur. Hann fordæmir vinnubrögð þeirra matvælaframleiðenda sem Matvælastofnun gerði athugasemdir við í síðustu viku. Í kjölfarið á stóra hrossakjötshneykslinu í Evrópu tók Matvælastofnun sextán matvörur sem eru framleiddar hér á landi til rannsóknar. Stofnunin gerði athugasemd við þær allar, merkingar á flestum vörunum voru rangar og eins og komið hefur fram fannst ekkert nautakjöt í nautabökum. Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtaka Íslands segir bændur vera sára yfir þessum svikum. Búnaðarþing stendur nú yfir og segir Haraldur málið vera tekið fyrir þar. Hann segir að eftir því sem keðjan er lengri á milli bóndans og neytandans geti svona svik komið upp. Haraldur segir bændur undirgangast gæðaflokkun á kjöti t.d séu lömbin flokkuð í marga verðflokka í sláturhúsinu en allt selt sem dilkakjöt út í búð, þá megi velta fyrir sér hvað verði um allt kýrkjötið. Sif Jónsdóttir bóndi og búnaðarþingsfulltrúi segir svik matvælaframleiðenda við bændur og neytendur grafalvarlegt mál og bændur verði að tryggja stöðu sína sem grunnframleiðendur. Rætt var við Harald og Sif í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Fleiri fréttir Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Sjá meira