Erlent

Prins er fæddur

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Fjöldi fólks beið barnsins fyrir utan St.Mary sjúkrahúsið í Paddington í London.
Fjöldi fólks beið barnsins fyrir utan St.Mary sjúkrahúsið í Paddington í London.
Katrín, hertogaynja af Cambridge, og Vilhjálmur prins eignuðust dreng rétt fyrir klukkan hálf fjögur í dag, eða klukkan 16.24 að staðartíma.

Í yfirlýsingu sem konungsfjölskyldan sendi frá sér kemur fram að móður og barni heilsist vel. Þar segir einnig að Vilhjálmur hafi verið viðstaddur fæðinguna. Fjölskyldan mun dvelja á sjúkrahúsinu í nótt.

Drengurinn er 3,8 kíló eða 15 merkur. Hann er númer þrjú í röðinni í erfðaröð bresku krúnunnar.

Læknir Katrínar undirritaði formlega tilkynningu í samræmi við gamlar hefðir. Sendiboði konungsfjölskyldunnar fór með tilkynninguna til Buckinghamhallar og festi þar upp á aðalhliðið svo allir geti lesið.

Karl Bretaprins sendi frá sér tilkynningu þar sem hann lýsir yfir ánægju sinni með sitt fyrsta barnabarn.

„Ég og konan mín erum gífurlega hamingjusöm yfir fæðingu drengsins. Þetta er einstakt augnablik fyrir Vilhjálm og Katrinu og við samgleðjumst þeim innilega. Við hlökkum mikið til að sinna ömmu- og afahlutverkunum.“

Á heimasíðu Vilhjálms og Katrínar stendur í tilkynningu að nafn prinsins verði tilkynnt innan tíðar. Hann fær titilinn prinsinn af Cambridge.



Fjölmiðlafulltrúi drottningarinnar og starfsmaður konungshallarinnar hengdu í kvöld upp tilkynningu um fæðingu prinsins samkvæmt gömlum hefðum fyrir utan Buckingham-höll.
Á tilkynningunni stendur meðal annars að móður og barni heilsist vel.

David Cameron, forsætirráðherra Bretlands, sendi hamingjuóskir til nýbökuðu foreldrana á Twitter-síðu sinni. „Allt landið mun fagna í kvöld, þið verðið dásamlegir foreldrar.“

Cameron spjallaði einnig við fjölmiðla fyrir utan Downing stræti 10.





Mikil fagnaðarlæti brutust út í Bretlandi þegar tilkynnt var um fæðingu krónprinsins.

Prinsinn litli var boðinn velkominn í heiminn um allt Bretland.MYND/AFP
Fjölmargir höfðu safnast saman við St.Mary sjúkrahúsið í Paddington í London þar sem barnið kom í heiminn, og einnig við Buckingham-höll.

Fagnaðarlæti við Buckingham-höll.
Talið er að rúmlega þúsund ljósmyndarar og blaðamenn hafi beðið barnsins við sjúkrahúsið í dag. Þeim gefst fyrst tækifæri til að taka myndir afbarninu á morgun, en þá mun fjölskyldan að öllum líkindum yfirgefa spítalann.

Fjölmiðlar bíða við sjúkrahúsið.Mynd/AP
Segja má að ákveðinn viðskiptaheimur hafi myndast í kringum fæðinguna, en fáar þungaðar konur hafa vakið jafn mikla athygli og Katrín. Þá hafa síðustu vikur verið opnaðir ýmsir veðbankar þar sem hægt er að giska á þyngd og kyn barnsins og leggja peninga undir.

Vörur til heiðurs prinsinum eru strax komnar í sölu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×