Innlent

Bandaríkjamenn hleruðu skrifstofur ESB

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Í skjölunum kemur fram að bandaríska leyniþjónustan og þjóðaröryggisstofnun landsins hafi hlerað höfuðstöðvar Evrópusambandsins í Washington, New York og víðar.
Í skjölunum kemur fram að bandaríska leyniþjónustan og þjóðaröryggisstofnun landsins hafi hlerað höfuðstöðvar Evrópusambandsins í Washington, New York og víðar. MYND/GETTY
Forseti Evrópuþingsins, Martin Schulz, hefur farið fram á við bandarísk stjórnvöld að þau útskýri umfang símahlerana á helstu starfsstöðvum Evrópusambandsins.

Greint er frá málinu í þýska miðlinum Der Spiegel en þar er vísað í gögn sem uppljóstrarinn Edward Snowden lak til fjölmiðla á dögunum.

Í skjölunum kemur fram að bandaríska leyniþjónustan og þjóðaröryggisstofnun landsins hafi hlerað höfuðstöðvar Evrópusambandsins í Washington, New York og víðar.

Ekki liggur fyrir hvaða upplýsingar komust í hendur leyniþjónustunnar en í umfjöllun breska ríkisútvarpsins um málið kemur fram að bandarísk yfirvöld gætu hafa sóst eftir því að kynna sér afstöðu aðildarríkja Evrópusambandsins til viðskipta og hernaðarmála.

Frá mótmælum í Þýskalandi. - „Yes We Scan“MYND/AP
Líklegt þykir að Snowden haldi enn til á alþjóðaflugvellinum í Moskvu. Hann hefur sótt um hæli í Ekvador en umsókn hans verður ekki tekin fyrir af þarlendum yfirvöldum fyrr en Snowden er kominn til landsins.

Bandarísk yfirvöld hafa kært uppljóstrarann Edward Snowden fyrir njósnir, þjófnað og misnotkun opinberra eigna. Snowden á yfir höfði sér tíu ára fangelsisvist fyrir hvert brot.

Varaforseti Bandaríkjanna, Joe Biden, hefur sett sig í samband við stjórvöld í Ekvador og farið fram á að Snowden verði framseldur til Bandaríkjanna komi hann þangað. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×